Ragnheiður Jónsdóttir | september. 9. 2014 | 17:00

Johnny Miller: Sergio Garcia er „choker“

Sagt er að Johnny Miller, hafi hafið Ryder Cup „stríðið“ milli Bandaríkjanna og Evrópu.

Miller, er í dag best þekktur sem golffréttaskýrandi aðallega á NBC en er auk þess tvöfaldur risamótsmeistari (vann Opna breska 1976 og Opna bandaríska 1973) og hefir sigrað 25 sinnum á PGA Tour.  Honum finnst hann því vita eitt og annað um golf og er frægur fyrir að vera heldur hvassyrtur um ýmsa kylfinga í golfskýringum sínum.

Það nýjasta er að hann kallaði Sergio Garcia „choker“, en í raun er ekkert gott hugtak til yfir þetta hugtak á íslensku.  Sögin „to choke“ á ensku þýðir á íslensku „að standa á öndinni“; „finnast maður vera að kafna“ eða „ná ekki andanum.“  Choker er sá sem chokar, á arfalélegri íslensku.

Miller kallaði Garcia „choker“ eftir að sá klúðraði 17. holunni á BMW Championship, sem er 3. mótið í FedEx Cup umspilinu, en það fór einmitt fram  s.l. helgi.

Garcia fékk þrefaldan skolla á 17. holunni.

Í beinni útsendingu sagði Miller: „That is just a flat choke“ (Léleg þýðing: Þetta var bara hreint út sagt beint „choke“ (hjá Garcia)“)

„Tvö högg í röð – ég veit ekki hvað á sér stað þarna í hausnum á honum, en það vantar bara eitthvað þar.  Virðist sem taugarnar (á honum) þoli ekki pressuna.“

Garcia lauk hringnum á 67 og lauk keppni jafn öðrum í 4. sæti.  (Ekki slæmt – sama hvað Miller tuðar!!!)

Garcia var auðvitað ekki nógu ánægður með sig og sagði: „Þetta voru virkileg vonbrigði, en þetta bara gerist þegar maður er þreyttur.“

Garcia ætlar sér hins vegar að vera skarpur og frískur þegar hann mætir Bandaríkjamönnum í Rydernum og er ekki mikið að pirra sig á Miller!