Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 12. 2015 | 14:00

John Daly segir lyfjaprófanir PGA Tour brandara

John Daly segir að lyfjaprófanir á PGA Tour séu brandari.

Daly, sem verður 49 ára í næsta mánuði,  tekur þátt í móti PGA Tour þessa vikuna Valspar Open og hefir nýnáð þeim glæsilega árangri að verða meðal efstu 10 í Puerto Rico Open, en það er nokkuð sem honum hefir ekki tekist í 3 ár.

Hann gagnrýndi harðlega lyfjaprófanir PGA Tour, sagði þær m.a. hlægilegar vegna þess að leikmenn væru látnir vita fyrirfram að prófun á þeim væri yfirvofandi og því væri mönnum veitt færi á að finna sér alls kyns undankomuleiðir.

„Vitið þið. Ég er þreyttur á þessu. Þetta verður að vera handahófskennt; (eins og það er) er þetta kjaftæði. Og mér þykir það leitt, sektið mig bara, mér er sama hvað þið gerið, sektið mig, en gerið það af handahófi.“

PGA svaraði Daly: „Öfugt við það sem John Daly heldur fram þá höfum við aldrei haft hann að skotmarki fyrir lyfjaprófanir okkar og staðhæfing hans um að  leikmenn viti hvenær þeir verði prófaðir er einfaldlega ekki sönn.“