Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 28. 2016 | 16:00

Jaye Marie Green óskar Daly til hamingju með afmælið m/ því að slá bolta af bjórdós!

John Daly fæddist í dag fyrir 50 árum og golfheimurinn allur hamast við að óska þessum mest elskaða vandræða- og geðluðrukasta gemlingi golfsins til hamingju með daginn.

Enginn hefir vafalaust gert það á frumlegri hátt en LPGA kylfingurinn Jaye Maríe Green.

Í tilefni dagsins sló hún bolta af bjórdós til að heiðra meistarann, og má sjá hana gera svo með því að SMELLA HÉR:

Jaye Marie Green slær golfbolta af bjórdós

Jaye Marie Green slær golfbolta af bjórdós

Ef þið vissuð það ekki þá er það að slá bolta af bjórdós sérstök sérfræðiiðja Daly og má sjá hann gera svo í samanburði við Green með því að SMELLA HÉR: 

Það lítur út fyrir að Daly hafi hitt boltann meira „sólíd“ en Green var svo sannarlega með betra jafnvægi.

En hvað sem öðru líður þá var þessi hamingjuósk Green fullkomin leið að heiðra Daly, þennan tvöfalda risamótsmeistara golfsins.

Daly mun nú framvegis spila í öldungadeild PGA og hefur frumraun sína á PGA Champions Tour í næstu viku á Insperity Invitational. Öldungamótaröðin er við það að fá „major boost“ og verður nú væntanlega framvegis mun skrautlegra og skemmtilegra að fylgjast með henni!!!