Jason Day vann á heimsmótinu – Ástralía vann í liðakeppninni!
Í dag var „Dagur Ástralíu“ en enskir fjölmiðlar snúa út úr eftirnafni Jason Day, sem vann einstaklingskeppnina á ISPS Handa heimsmótinu í golfi, sem fram hefir farið á Royal Melbourne golfvellinum í Melbourne, Ástralíu. (Ens.: „Australia´s Day“).
Jason vann einstaklingskeppnina á 10 undir pari, 274 höggum (68 70 66 70). Ástralía vann liðakeppnina á samtals 551 höggi, en Day og Adam Scott skipuðu lið Ástrala.
Í 2. sæti í einstaklingkeppninni var Daninn Thomas Björn á samtals 8 undir pari, 276 höggum (66 68 71 71) og í 3. sæti varð Adam Scott á samtals 7 undir pari, 277 höggum (75 68 68 66) en segja má að arfaslakur 1. hringur hafi eyðilagt fyrir Scott, sem að öðrum kosti hefði eflaust hafnað í efsta sæti hefði skorið verið 71 eða lægra, eða m.ö.o. 3-5 höggum meira en þrjá næstu daga hjá honum.
Í liðakeppninni varð lið Bandaríkjanna í 2. sæti (Kuchar/Streelman) og lið Danmerkur í 3. sæti (Björn/Olesen).
Til þess að sjá lokastöðuna á ISPS Handa heimsmótinu SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá hápunkta 4. dags á ISPS Handa heimsmótinu SMELLIÐ HÉR:
Til þess að sjá högg 4. dags sem Adam Scott átti (örn) SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
