Jason Day dró sig úr heimsmótinu í holukeppni vegna veikinda móður
Jason Day dró sig úr WGC-Dell Technologies heimsmótinu í holukeppni vegna þess að móðir hans Dening Day, sem greinst hefir með lungnakrabba, mun gangast undir uppskurð nk. föstudag og Jason vill vera hjá henni.
„Það er virkilega erfitt bara að ímynda sér að vera á golfvellinum núna vegna þess sem hún hefir mátt þola,“ sagði Day á blaðamannafundi tárum nær.
Hann gaf upphafsviðureign sína gegn Pat Perez eftir 6 holur.
Day var búinn að missa 3 holur á því stigi.
Jason Day sagði að móður hans hefðu verið gefnir 12 mánuðir að lifa í upphafi þessa árs. Hann flutti hana frá Ástralíu til Bandaríkjanna stuttu eftir að henni var veitt þetta álit lækna í Ástralíu. N.k. föstudag munu bandarískir læknar gera tilraun til að fjarlægja æxli, sem er um 3-4 cm stórt í lunga hennar.
Vel skiljanlegt að hugurinn sé ekki alveg við golfið hjá Day í augnablikinu!!!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
