Fannar Ingi Steingrímsson
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2015 | 16:30

Jamega Tour: Fannar með frábært golf – var á 5 undir pari lokahringinn í Portúgal – 68 högg!

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, átti hreint æðislegan lokahring á móti Jamega Algarve Pro Golf Tour, í Morgado, Portúgal í dag.

Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt  þ.e. þeir Axel Bóasson, núverandi klúbbmeistari GK; Gísli Sveinbergsson, GK; Kristján Þór Einarsson, GM stigameistari GSÍ 2014;Fannar Ingi Steingrímsson, GHG og  Bjarki Pétursson, GB, en mótinu, sem var tveggja daga lauk í dag, 8. febrúar 2015.

Þáttakendur voru 72.

Fannar Ingi átti stórglæsilegan seinni hring upp á 5 undir pari, 68 högg en Morgado völlurinn er par-73!!!

Á hringnum fékk Fannar Ingi 7 fugla og 2 skolla.  Hann var á sama heildarskori og Scott Drummond frá Skotlandi, en hann er sá eini af þátttakendunum, sem sigrað hefir á móti á Evrópumótaröðinni, svona til þess að setja í samhengi hversu magnaður árangur Fannars Inga er.

Aðrir íslenkur þátttakendanna luku leik með eftirfarandi hætti: Axel Bóasson, GK, 1 yfir pari (69 78); Bjarki Pétursson, GB, á samtals 2 yfir pari (76 72); Gísli Sveinbergsson, GK, á samtals 3 yfir pari (77 72); Kristján Þór Einarsson, GM  á samtals 4 yfir pari (78 72); Stefán Bogason, GR, á samtals 20 yfir pari (84 82).

Ljóst er að allir íslensku kylfingarnir eru búnir að standa sig framúrskarandi vel m.a. í ljósi þess að verið er að keppa við menn á borð við Scott Drummond, en auk þess eru a.m.k. 8 aðrir sem leikið hafa á Evrópumótaröðinni menn á borð við Matthew Southgate – Sjá kynningu Golf 1 á Southgate með því að SMELLA HÉR:;  Daníel Gaunt – Sjá kynningu Golf 1 á Gaunt með því að SMELLA HÉR: og aðrir sem spilað hafa á Áskoredendamótaröð Evrópu þ.e. menn á borð við Tiago Cruz.

Sjá má lokastöðuna í Morado mótinu með því að SMELLA HÉR: