Ragnheiður Jónsdóttir | október. 1. 2013 | 08:00

Golfútbúnaður: Nicklaus framleiðir golfbolta

Jack Nicklaus hefir svo sannarlega reynsluna; hann hefir líklegast spilað með flestum tegundum golfbolta, prófað þá og spilað með þeim til þess að vita hvernig hinn fullkomni golfbolti á að vera.  Og nú hefir hann ákveðið að hefja framleiðslu á eiginn golfboltum.

1-Nicklaus

Boltar Nicklaus koma á markað í Bandaríkjunum í byrjun nóvember n.k. Þetta er lína golfbolta þar sem hver kylfingur á að finna bolta við sitt hæfi.

Þrír boltar eru fáanlegir í línunni: Nicklaus Black, Nicklaus Blue og Nicklaus White.  Nicklaus Black boltarnir eru hannaðir fyrir lágforgjafarkylfingana; Nicklaus Blue eru ætlaðir kylfingum með meðalforgjöf og Nicklaus White eru ætlaðir háforgjafarkylfingum.

Nicklaus hefir lánað nafn sitt á ýmsar golfvörur – en þessi lína golfbolta er hans eiginn, sem hann er að koma með á markað eftir 3 ára rannsóknir.

Ákveðin prósentuhluti af söluhagnaði boltanna rennur til Nicklaus Children’s Health Care Foundation, sem  Nicklaus og eiginkona hans, Barbara, stofnuðu 2004.