Ítalía sækir um að fá að halda Ryder bikarinn 2022 – Tyrkland dregur tilbaka umsókn sína
Ítalía hefir sótt um að fá að halda Ryder bikars keppnina árið 2022.
Völlurinn sem Ítalía stingur upp á að mótið fari fram á er í Guidonia, norðaustur af Róm, á Marco Simone en þar fór Opna ítalska árið 1994 fram þar sem Argentínumaðurinn Eduardo Romero sigraði.
Tyrkland á hinn bóginn hefir dregið umsókn sína um að fá að halda keppnina það ár tilbaka vegna þess m.a. að hún hefði þýtt að fella yrði 15.000 tré í námunda við keppnisvöllinn.
Tyrkland var búið að stinga upp á að keppnin færi fram á Montgomerie Maxx Royal vellinum þar sem Turkish Airlines Open, mót á Evrópumótaröðinni mun fara fram nú í vikunni. Montgomerie er hins vegar hluti golfstaðar og ekki hannaður fyrir risamót sagði Ahmet Agaoglu, forseti tyrkneska golfsambandsins.
Það eru auk þess engir áhorfendapallar og ekkert pláss fyrir þá vegna fjölda trjáa sagði Agaoglu. Hann sagði að ómögulegt hefði verið að fá leyfi til að fella niður þann fjölda trjáa sem krafist hefði verið og því ekki hægt að halda keppnina.
Agaoglu sagði hins vegar að Tyrkland myndi sækja um að fá að halda Ryder bikars keppnina 2026 og byggja nýjan golfvöll, sem myndi kosta á bilinu 30-40 evra (4650 -6200 milljónir íslenskra króna).
Eftir að Tyrkland dró tilbaka umsókn sína um að halda Ryder keppnina 2022 eru aðeins 6 lönd eftir sem sækjast eftir að fá að halda mótið: Austurríki, Danmörk, Þýskaland, Ítalía, Portúgal og Spánn.
Starfsmenn Ryder Cup munu skoða alla vellina til loka ársins. Formlega umsóknir verða að hafa borist um miðjan febrúar á næsta ári og tilkynnt verður um hver heldur Ryder bikarinn árið 2022, seinna á árinu 2015.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

