Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 27. 2015 | 07:00

Íslensku krakkarnir luku leik á European Young Masters

European Young Masters lauk s.l. laugardag en mótið, sem fór fram í Domaine Impérial golfklúbbnum stóð dagana 23.-25. júlí.

Keppt var í pilta- og stúlknaflokki og voru þátttakendur Íslands tveir piltar og tvær stúlkur.

Kristján Benedikt Sveinsson, GA, lék langbest íslensku þátttakandanna í mótinu; var á samtals 8 yfir pari, 226 höggum (75 71 78) og lauk keppni T-17.  Arnór Snær Guðmundsson GHD varð í 45. sæti en hann lék á 25 yfir pari, 241 höggi (79 82 80).

Af stúlkunum stóð sig best Ólöf María Einarsdóttir, GHD en hún varð T-38 á samtals 25 yfir pari 241 höggi (77 84 80), en Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR var í 51. sæti  á samtals 40 yfir pari 256 höggum (85 84 87).

Til þess að sjá lokastöðuna á European Young Masters SMELLIÐ HÉR: