Ólafía Þórunn, Sunna og Guðrún Brá í Japan Íslenska kvennalandsliðið í 30. sæti eftir 3. dag í Japan
Íslenska kvennalandsliðið tekur nú þátt í Espirito Santo Trophy í Japan, en mótið stendur dagana 2.-7. september 2014.
Í liðinu eru Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK; Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Sunna Víðisdóttir, GR.
Liðsstjóri er: Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ og þjálfari: Úlfar Jónsson.
Íslenska kvennalandsliðið er í 30. sæti af 50 liðum eftir 3. dag , en 2 bestu skor liðsmanna af 3 telja hvern mótsdaga. Ísland deilir 30. sætinu í liðakeppninni með liðum Hong Kong og Slóveníu eftir 3. keppnisdaga.
Ólafía Þórunn var á besta skori íslenska liðsins á 3. hringnum, 1 undir pari, 71 höggi á 3. og Guðrún Brá var líka á fínu skori 1 yfir pari, 73 höggum. Sunna er ekki alveg að finna sig í mótinu en hún lék á 6 yfir pari, 78 höggum á 3. hring
Í einstaklingskeppninni eru þær Guðrún Brá og Ólafía Þórunn jafnar; eru báðar á samtals 4 yfir pari, 220 höggum; Guðrún Brá (75 72 73) og Ólafía Þórunn (74 75 71) og deila 58. sætinu með 9 öðrum kylfingum. Sunna er á samtals 18 yfir pari eftir 3, keppnisdag, 156 höggum (75 81 78 ) og lauk keppni T-119.
Sjá má stöðuna eftir 3. dag í liðakeppninni með því að SMELLA HÉR:
Sjá má stöðuna eftir 3. dag í einstaklingskeppninni með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
