Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2014 | 08:45

Íslenska kvennalandsliðið í 33. sæti í Japan

Íslenska kvennalandsliðið tekur nú þátt í Espirito Santo Trophy í Japan.

Í liðinu eru Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK; Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Sunna Víðisdóttir, GR.

Liðsstjóri er: Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ og þjálfari: Úlfar Jónsson.

Íslenska kvennalandsliðið er í 33. sæti af 50 liðum eftir 1. dag , en 2 bestu skor liðsmanna af 3 telja.

Ólafía Þórunn var á besta skori íslenska liðsins, 2 yfir pari, 74 höggum og Guðrún Brá og Sunna báðar á 3 yfir pari, 75 höggum.

Í einstaklingskeppninni er Ólafía Þórunn í 50. sæti en Guðrún Brá og Sunna báðar í 65. sæti af 147 keppendum.

Sjá má stöðuna í liðakeppninni með því að SMELLA HÉR:

Sjá má stöðuna í einstaklingskeppninni með því að SMELLA HÉR: