Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 11. 2017 | 14:00

Íslenska kvennalandsliðið í 18. sæti á EM eftir fyrsta hringinn

Kvennalandsliðið í golfi hóf 11. júlí 2017 keppni á Evrópumótinu í liðakeppni sem fram fer á Montado Resort í Portúgal. Íslenska liðið er í næst neðsta sæti af alls 19 þjóðum sem taka þátt. Ísland er á +23 samtals en Portúgal er á +24 í neðsta sætinu.

Svíar eru efstir á -10 samtals og Englendingar eru þar á eftir á -9. Englendingar hafa titil að verja en EM fór fram á Urriðavelli á Íslandi fyrir ári síðan.

Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Fimm bestu skorin á hverjum hring telja í hverri umferð.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK lék best fyrsta keppnisdag; var á pari vallar eða 72 höggum. Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR lék á 74 höggum (+2), Helga Kristín Einarsdóttir (GK( 77 (+5), Saga Traustadóttir (GR) 79 (+7), Anna Sólveig Snorradóttir (GK) 81 (+9) og skor Berglindar Björnsdóttir (GR) 83 (+11) taldi ekki í dag.

Anna Sólveig fór holu í höggi á 3. holu fyrsta keppnisdag. .

Helga Kristín og Saga eru nýliðar í A-landsliði kvenna.

Texti: GSÍ