HILVERSUM – Team Iceland / IJsland. ELTK Golf 2020 The Dutch Golf Federation (NGF), The European Golf Federation (EGA) and the Hilversumsche Golf Club will organize Team European Championships for men. COPYRIGHT KOEN SUYK
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 13. 2020 | 21:00

Íslenska karlalandsliðið varð í 9. sæti á EM áhugakylfinga

Karlalandslið Íslands í golfi hóf leik þann 9. september á Evrópumóti áhugakylfinga. Að þessu sinni var keppt á Hilversumsche Golf Club í Hollandi. Mótinu lauk í gær, þann 12. september 2020 með sigri Þjóðverja – en Ísland endaði í 9. sæti.

Að þessu sinni voru aðeins fjórir leikmenn í hverju landsliði en að öllu jöfnu eru sex leikmenn í hverju liði. Fjöldi liða á EM að þessu sinni voru 14 þjóðir en að öllu jöfnu eru um 20 þjóðir sem taka þátt á EM – en Covid-19 ástandið í Evrópu hefur sett strik í reikninginn hjá mörgum þjóðum hvað varðar þátttöku á EM 2020.

Íslenska liðið var skipað eftirfarandi leikmönnum: Kristófer Karl Karlsson, Hákon Örn Magnússon, Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandssson. Ólafur Björn Loftsson, aðstoðarafreksstjóri GSÍ, var liðsstjóri.

Nánar um mótið hér, úrslit, rástímar og aðrar upplýsingar:

Alls tóku 14 þjóðir þátt. Austurríki, Belgía, Tékkland, Danmörk, Eistland, Frakkland, Þýskaland, Ísland, Ítalía, Holland, Slóvakía, Slóvenía, Svíþjóð og Sviss.

Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að fyrsta keppnisdaginn var leikinn höggleikur, 18 holur.

Þrjú bestu skorin töldu hjá hverju liði og fjórða skorið taldi ef liðin skildu jöfn.

Átta efstu liðin eftir höggleikinn komust í A-riðil og keppa þar um Evrópumeistaratitilinn.

Liðin í sætum 9 -14 leika í B-riðli.

Í riðlakeppninni er holukeppni á milli liða. Í hverjum leik er leikinn einn fjórmenningsleikur (foursome) og tveir tvímenningar (singles).

Ísland lagði Belgíu í leiknum um 9. sætið

Ísland og Belgía áttust við í gær (12. september) í úrslitaleik B-riðils á Evrópumóti áhugakylfinga í Hollandi. Um var að ræða úrslitaleik í B-riðli keppninnar. Ísland var aðeins einu höggi frá því að komast í A-deildina eftir höggleikinn.

Kristófer Karl Karlsson og Aron Snær Júlíusson sigruðu í fjórmenningsleiknum 2/0. Hákon Örn Magnússon sigraði örugglega í sínum tvímenningsleik 5/4 en Aron Snær Júlíusson tapaði naumlega 1/0.

Þjóðverjar fögnuðu Evrópumeistaratitlinum eftir sigur gegn Svíum í úrslitaleik.

Lokastaðan

1. Þýskaland
2. Svíþjóð
3. Sviss
4. Ítalía
5. Holland
6. Austurríki
7. Frakkland
8. Danmörk
9. Ísland
10. Belgía
11. Eistland
12. Tékkland
13. Slóvakía
14. Slóvenía