Haraldur Franklín. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2014 | 18:00

Íslenska karlalandsliðið tapaði fyrir Dönum – Haraldur Franklín náði eina vinningi Íslands!

Íslenska karlalandsliðið tapaði í dag í fyrstu umferð í holukeppninnar á EM í leik sínum gegn frændum okkar Dönum.

Leikurinn endaði þannig að Ísland fékk einn vinning gegn 4 vinningum Dana.

Hetja Íslendinga þ.e. á sem landaði eina sigri Íslands var Haraldur Franklín Magnús, GR en hann átti eina holu á Danann Nicolai Kristensen.

Sjá má hvernig einstakir aðrir leikir fóru með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir leikir á EM karlalandsliða fóru eftirfarandi:

Riðill A

England g. Sviss 6-1

Írland g. Þýskalandi 4-3

Skotland g. Svíþjóð 4-3

Spánn g. Frakklandi 4-3

Riðill B

Ítalía-Portúgal 5-1

Holland – Finnland 3 1/2 – 1 1/2

Belgía – Austurríki 3 -2

Danmörk – Ísland 4 -1