Íslandsmótið í höggleik – Óskar Pálsson: „GHR – þetta er samheldinn hörkuklúbbur“
Íslandsmótið í höggleik hófst í dag á Strandarvelli hjá Golfklúbbi Hellu, sem fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir. Golf 1 tók örstutt viðtal við Óskar Pálsson, formann GHR:
Golf 1: Nú verður að telja mikið þrekvirki fyrir lítinn klúbb sem telur 138 félagsmenn að standa fyrir einu stærsta móti ársins á Íslandi, Íslandsmótinu í höggleik – hvernig farið þið að þessu?
Óskar: Klúbburinn gerir þetta – þetta er bara samheldinn hörkuklúbbur, sem hefir á að skipa frábærum félagsmönnum. Ég varð samt feginn þegar þetta hófst allt saman í morgun, þá var engu sem hægt var að bæta við.
Golf1: Hafið þið aðstöðu til þess að taka á móti miklum fjölda áhorfenda á Íslandsmótið?
Óskar: Við höfum 18 holu völl og alla Rangárvellina og við erum með stærsta bílastæði í heimi. Við getum tekið við ótrúlega mörgum bílum.
Golf1: Nú hafa þátttakendur í Íslandsmótinu verið að hrósa Strandarvelli, sem skemmtilegum, með góðar flatir en jafnframt erfiðum, sérstaklega vegna kargans – Er eitthvað sérstakt sem gert var við völlinn fyrir mótið?
Óskar: Við vökvuðum greenin í 4 tíma á dag í ca 2 mánuði fyrir mót. Að öðru leyti erum við búin að undirbúa þetta í 2 ár. Eins höfum við ekkert slegið kargann.
Golf 1: Nú þekkir þú Strandarvöll betur en flestir – hvað telur þú að þurfti til þess að sigra á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli?
Óskar: Það þarf að spila 2-4 undir pari, ég tel að með 16 undir þá sé maður öruggur með sigur. Strandarvöllur er dæmigerður linksari, þar sem þarf að hafa mikið vald á boltanum kringum greenin. Sá sem er bestur í stutta spilinu vinnur. Erum með sakleysislegar en ótrúlega lúmskar flatir og lúmsk brot víða. Síðan verður maður að vera á braut, hitta flatirnar – þá skorar maður vel. – Karginn er orðinn meiri en vanalega það má ekki fara út í hann. Það er hægt að tapa mjög mörgum höggum, hvort heldur er í karga eða sandi á vellinum.
Golf 1: GHR á 60 ára afmæli. Var haldið með einhverjum sérstökum hætti upp á stórafmælið?
Óskar: Við erum búin að því; við félagarnir í klúbbnum.
Golf1: Hvað er þér minnisstæðast úr starfinu og veru þinni í GHR?
Óskar: Kvöldið sem ég varð formaður. Þá hugsaði ég: „Hvað hef ég komið mér í núna?”
Golf 1: Sérðu eftir einhverju sem formaður?
Óskar: Nei, þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og ég sé ekki eftir neinu.
Golf1: Hvað hefir þú lengi gengt stöðu formanns GHR og einhvers staðar heyrði ég að þú hefðir oftast orðið klúbbmeistari. Hversu oft hefir þú orðið klúbbmeistar GHR?
Óskar: Ég hef verið formaður í 12 ár og orðið klúbbmeistari 21 eða 22 sinnum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
