Anna Sólveig Snorradóttir ásamt kaddý. Mynd: gsimyndir.net
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2012 | 13:45

Íslandsmótið í höggleik: Enn versnar staðan hjá Valdísi Þóru – Anna Sólveig og Tinna enn jafnar eftir 6 holur

Nú þegar 1/3 hluti lokahrings hefir verið leikinn á Íslandsmótinu í höggleik er enn allt í stáli milli klúbbfélaganna Önnu Sólveigar Snorradóttur, GK og Tinnu Jóhannsdóttur, GK, sem leiða sem stendur. Það er aðeins Anna Sólveig sem hefir bætt stöðu sína frá fyrri degi með flottum fugli á 3. braut.  Tinna heldur jöfnu fékk fugl á 1. og skolla á 2. braut.

Því miður hefir bilið aðeins breikkað milli forystukvennanna og Valdísar Þóru Jónsdóttur, sem leiddi fyrir hringinn, því Valdís Þóra bætti við enn einum skollanum (á par-4 6. brautina) og er þeir þá orðnir 3 á fyrstu 6 holunum hjá henni.

En eins og allir kylfingar þekkkja eru hlutirnir fljótt að breytast á golfhring!

Spennandi – spennandi – hver stendur uppi sem nýr Íslandsmeistari í höggleik í kvennaflokki?

Til þess að fylgjast með stöðunni SMELLIÐ HÉR: