Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2021 | 02:30

Íslandsmótið 2021: 16 ernir

Það er fremur fátítt að hinn almenni kylfingur fái örn, þ.e. spili braut á 2 færri höggum.

Oftast koma ernir á par-5 brautir, en þá er brautin spiluð á 3 höggum.

Ernir geta líka verið 2 högg á par-4 braut og svo er ás á par-3 alltaf örn líka 🙂

Á nýafstöðnu Íslandsmóti í golfi urðu ernir í mótinu samtals 16.

Karlkylfingar voru með samtals 12 erni á milli sín og kvenkylfingar voru með 4 erni. Verður nú greint nánar frá þessum örnum:

Karlar

Jóhann Frank Halldórsson, GR, var sá eini af karlkylfingunum sem ekki komust gegnum niðurskurð til þess að vera með örn. Reyndar var hann eini kylfingur mótsins sem ekki komst gegnum niðurskurð, sem hlaut örn. Aðeins 1 höggi munaði að Jóhann Frank næði gegnum niðurskurðinn. Örninn sem hann fékk kom á par-5 15. braut Jaðarsins á 2. keppnisdegi.

Fjórir karlkylfingar voru með erni á 2. keppnisdegi á par-5 2. braut Jaðarsins: Andri Már Óskarsson, GHR,  Birgir Björn Magnússon GK, Dagur Fannar Hákonarson, GKG og Jón Karlsson, GR.

Arnór Tjörvi Þórsson, GR var með örn á par-5 15. braut Jaðarsins á 3. keppnisdegi.

Tómas Ingi Hjaltested GR var eini kylfingurinn á Íslandsmótinu til þess að vera með fleiri en 1 örn; hann fékk 2 erni. Fyrri örninn kom 2. keppnisdag, á par-5 2. braut Jaðarsins og hinn á par-5 15. braut Jaðarsins á 3. keppnisdegi.

Logi Sigurðsson, GS, var með örn á par-5 3. braut Jaðarsins á 1. keppnisdegi.

Heimamaðurinn, Ævar Freyr Birgisson, GA, var með örn á par-5 15. braut á 2. keppnisdeg.

Breki Gunnarsson Arndal, GKG, var með örn á par-5 3. braut á 3. keppnisdag.

Pétur Þór Jaidee, GS var með örn á par-5 15. braut á 3. keppnisdegi.

Konur

Íslandsmeistari kvenna í höggleik 2021, Hulda Clara Gestsdóttir GKG, var með örn á 2. keppnisdegi á par-5 2. braut Jaðarsins.

Katrín Sól Davíðsdóttir, GM var líka með örn á par-5 2. braut Jaðarsins, en á 1. keppnisdegi.

María Björk Pálsdóttir, GKG, var með örn á par-4 14. braut Jaðarsins á 2. keppisdegi. Hún var jafnframt eini keppandinn á Íslandsmótinu til þess að fá örn á par-4 braut.

Anna Júlía Ólafsdóttir, GKG, fékk örn á par-5 2. braut á 4. keppnisdegi og var eini keppandinn á Íslandsmótinu með örn þann keppnisdag!

—————————————-

Flestir ernir eða 9 komu á 2. keppnisdegi; næstflestir á 3.keppnisdag eða 4; 2 ernir voru skoraðir 1. keppnisdag og fæstir eða 1, fjórða og síðasta keppnisdag.

Flestir ernir komu á par-5 2. braut Jaðarsins eða 8; næstflestir á par-5 15. brautina eða 5; 2 á par-5 3. brautina og aðeins 1 á par-4 14. braut.

Skipt niður eftir klúbbum fengu GR-ingar og GKG-ingar jafnmarga erni eða 5; GS-ingar fengu 2 erni; GK 1 örn; GM 1 örn; GHR 1 örn og heimamenn í GA, 1 örn.