Íslandsmót unglinga fer fram á Þorláksvelli og seinna í dag verður ljóst hvrejir eru Íslandsmeistarar unglinga í holukeppni 2012! Mynd: Golf 1. Íslandsmót unglinga í holukeppni: Lokastaðan í 4 manna úrslitum
Í morgun fóru fram 4 manna úrslit í Íslandsmóti unglinga á Þorláksvelli, í Þorlákshöfn.
Hér eru helstu úrslit:
Strákaflokkur 14 ára og yngri:
Hjá 14 ára og yngri strákum vann Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, Henning Darra Þórðarson, GK 2/0 og Atli Már Grétarsson, GK vann Eggert Kristján Kristmundsson, GR 3/2. Það eru því þeir Fannar Ingi, GHG og Atli Már, GK, sem keppa um Íslandsmeistaratitilinn í strákaflokki 2012!
Stelpuflokkur 14 ára og yngri:
Hjá 14 ára og yngri stelpum vann Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GK, klúbbfélaga sinn Thelmu Sveinsdóttur 6/5 og Íslandsmeistarinn í höggleik stelpna 2012 Saga Traustadóttir, GR vann klúbbfélaga sinn Evu Karenu Björnsdóttur, GR 3/2. Það verða því Þóra Kristín, GK og Saga, GR sem keppa um Íslandsmeistaratitilinn í stelpuflokki 2012!
Drengjaflokkur 15-16 ára:
Hjá 15 – 16 ára drengjum vann Aron Snær Júlíusson, GKG, Gísla Sveinbergsson, GK 2/1 og Birgir Björn Magnússon, GK vann Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG 5/4. Aron Snær, GKG og Birgir Björn, GK keppa því um Íslandsmeistaratitilinn í drengjaflokki 2012!
Telpnaflokkur 15-16 ára:
Hjá 15 – 16 ára telpum vann Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, Helgu Kristínu Einarsdóttur, NK 3/2 og Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG vann Söru Margréti Hinriksdóttur, GK 5/4. Ragnhildur, GR og Gunnhildur, GKG mætast því í úrslitum um Íslandsmeistaratitil telpna í holukeppni 2012!
Piltaflokkur 17-18 ára:
Hjá 17 – 18 ára piltum vann Stefán Þór Bogason, GR; Ísak Jasonarson, GK 5/4 og Ragnar Már Garðarsson, GKG vann Emil Þór Ragnarsson, GKG 5/4. Það eru því Stefán Þór, GR og Ragnar Már, GKG, sem mætast því í úrslitum um Íslandsmeistaratitil pilta í holukeppni 2012!
Stúlknaflokkur 17-18 ára:
Hjá 17 – 18 ára stúlkum vann Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, klúbbfélaga sinn Högnu Kristbjörgu Knútsdóttur, GK 4/2 og Anna Sólveig Snorradóttir, GK vann Guðrúnu Pétursdóttur, GR 3/2. Guðrún Brá, GK og Anna Sólveig, GK mætast því í úrslitum um Íslandsmeistaratitil stúlkna í holukeppni 2012…. og aðeins eitt ljóst í þeirri viðureign að Íslandsmeistaratitillinn í stúlknaflokki í holukeppni fer til Golfklúbbsins Keilis í ár!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
