Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2022 | 21:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Gunnlaugur Árni Íslandsmeistari í fl. 17-18 ára pilta

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst.

Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar.

Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, sigraði í flokki 17-18 ára. Í úrslitaleiknum var Jóhann Frank Halldórsson, GR, mótherji Gunnlaugs en úrslitaleikurinn fór 5/4 fyrir Gunnlaug Árna. Dagur Fannar Ólafsson, GR, varð þriðji en hann sigraði Ísleif Arnórsson, GR, 5/4 í leiknum um bronsverðlaunin.

Á leið sinni að titlinum sigraði Gunnlaugur Árni, Halldór Viðar Gunnarsson, GR 3/2 í 16-manna úrslitum. Hann sigraði Tómas Huga Ásgeirsson, GK, 1/0 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sigraði Gunnlaugur Árni, Ísleif Arnórsson, GR, 8/7.

Sjá má alla leiki í flokki 17-18 ára pilta hér að neðan eða með því að SMELLA HÉR: