Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2017 | 18:00

Íslandsmót golfklúbba 2017: Sveit GA sigraði í 2. deild kvenna!!!

Íslandsmót golfklúbba 2017 hófst föstudaginn 11. ágúst og keppni lauk í dag sunnudaginn 13. ágúst.

Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki.

GA fagnaði sigri í 2. deild kvenna.

Leikið var á Bárarvelli hjá Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði.

Íslandsmeistarasveit GA 2017 skipa þær: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir; Stefanía Elsa Jónsdóttir; Andrea Ýr Ásmundsdóttir; Ólavía Klara Einarsdóttir og Marianna Ulriksen.
Liðsstjóri var:  Stefanía Kristín Valgeirsdóttir