Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2021 | 17:00

Íslandsmót gk 2021: Kiðjaberg leikur í 1. deild á næsta ári!!!

Íslandsmót golfklúbba 2021 (í fyrirsögn stytt í Íslandsmót gk)  í 2. deild karla fór fram á Kiðjabergsvelli dagana 27.-29. júlí.

Alls voru 8 golfklúbbar í 2. deild og var leikið í tveimur riðlum.

Tvö efstu liðin úr hvorum riðli komust í undanúrslit, þar sem að efsta liðið úr riðli A lék gegn liði nr. 2 úr B-riðli. Efsta liðið úr B-riðli lék gegn liði nr. 2 úr A-riðli í undanúrslitum.

Sigurliðið úr 2. deild karla fór upp í 1. deild og liðið í 8. sæti féll í 3. deild karla.

Í úrslitaviðureigninni sigraði sveit GKB 3-2 og andstæðingarnir Nesklúbburinn urðu að sætta sig við 2. sæti.

Það var Andri Jón Sigurbjörnsson, sem tryggði sigur GKB með pútti á lokaholu. KGB leikur því í 1. deild á næsta ári.

Sigursveit GKB var svo skipuð:

Andri Jón Sigurbjörnsson

Andri Snær Hákonarson

Axel Ásgeirsson

Árni Gestsson

Árni Freyr Sigurjónsson

Halldór X Halldórsson

Haraldur Þórðarson

Sturla Þórðarson

GSS og GFB háðu baráttu um að halda sér í 2.deild og þar hafði GFB betur en GSS féll í 3. deild.

Lokastaðan í 2. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba 2021:

1 sæti GKB

2 sæti NK

3 sæti GO

4 sæti GSE

5 sæti GL

6 sæti GÖ

7 sæti GFB

8 sæti GSS