Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2022 | 18:00

Íslandsmót barna 2022: Pamela Ósk varð Íslandsmeistari í fl. 13-14 ára stelpna

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, sigraði á Íslandsmótinu í höggleik í flokki 13-14 ára stúlkna 2022.

Mótið fór fram á Setbergsvelli, dagana 11.-13. ágúst, en leiknir voru þrír 18 holu hringir í þessum aldursflokki.

Þátttakendur voru 18.

Pamela Ósk lék á 233 höggum eða 17 höggum yfir pari, (81-76-76).

Hún var sjö höggum á undan næsta keppenda. Vala María Sturludóttir, GL, varð önnur á 240 höggum (85-80-75) og Ninna Þórey Björnsdóttir, GR, varð þriðja á 244 höggum (84-79-81).

Sjá má lokastöðuna í flokki 13-14 ára stelpna með því að SMELLA HÉR: