Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2017 | 14:00

Íslandsbankamótaröðin 2017 (6): Daníel Ingi sigraði í piltaflokki 19-21 árs

Lokamót Íslandsbankamótaraðarinnar fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 25.-27. ágúst. Mótið var jafnframt sjötta mót tímabilsins. Fella þurfti niður eina umferð í heild sinni á laugardeginum vegna veðurs.

Tveir elstu aldurshóparnir léku því tvær umferðir, á föstudegi og sunnudegi, en aðrir keppnishópar léku eina umferð á sunnudegi við ágætar veðuraðstæður.

Í piltaflokki, 19-21 árs sigraði Daníel Ingi Sigurjónsson, GV á samtals 20 yfir pari, 162 höggum (81 81).

Heildarúrslit í piltaflokki 19-21 árs á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2017 urðu eftirfarandi:

1 Daníel Ingi Sigurjónsson GV 6 F 37 44 81 10 81 81 162 20
2 Gunnar Blöndahl Guðmundsson GKG 7 F 37 40 77 6 88 77 165 23
3 Birgir Rúnar Steinarsson Busk GOS 7 F 43 36 79 8 88 79 167 25
4 Andri Ágústsson GVS 10 F 37 46 83 12 84 83 167 25