Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 17. 2017 | 17:00

Íslandsbankamótaröðin 2017 (4): Íslandsmeistari í höggleik 19-21 árs stúlkna

Íslandsmóti unglinga á Íslandsmótaröðinni lauk 16. júlí 2017 á Garðavelli á Akranesi. Alls voru átta Íslandsmeistarar krýndir á mótinu en um 150 keppendur tóku þátt.

Kylfingar úr Golfklúbbi Reykjavíkur voru sigursælir og fékk GR alls fimm Íslandsmeistaratitla af alls átta sem voru í boði. Keppt var í fyrsta sinn í flokki 19-21 árs á Íslandsmótinu.

Íslandsmeistari í stúlknaflokki 19-21 árs varð Laufey Jóna Jónsdóttir, GS.

Úrslit í stúlknaflokki 19-21 ársá Íslandsmóti unglinga í höggleik 2017 voru eftirfarandi:

19-21 ára (bláir teigar):
1. Laufey Jóna Jónsdóttir, GS (84-84 -78) 246 högg
2. Arna Rún Kristjánsdóttir, GM (86-86-87) 259 högg