Arnór Snær Guðmundsson, klúbbmeistari GHD 2014. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2016 | 11:00

Íslandsbankamótaröðin 2016 (1): Arnór Snær sigraði í piltaflokki

Það var Arnór Snær Guðmundsson , GHD, sem sigraði í piltaflokki á 1. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2016, sem fram fór 27.-29. maí 2016, en 113 voru í mótinu.

Alls voru 113 þátttakendur í mótinu.

Sigurskor Arnórs Snæs var 6 yfir pari, líkt og var skor Hennings Darra Þórðarsonar úr GK og varð því að koma til bráðabana milli þeirra tveggja, sem Arnór Snær hafði betur í.

Sjá má úrslitin (stöðu efstu 5 hér að neðan) í piltaflokki hér að neðan: 

1. Arnór Snær Guðmundsson, GHD, F (76 74) +6
2. Henning Darri Þórðarson, GK, F (78 72) +6
*Arnór sigraði á 12. holu í bráðabana.
3.-6. Andri Páll Ásgeirsson, GK, F (79 75) +10
3.-6. Aron Skúli Ingason, GM, F (80 74) +10
3.-6. Hlynur Bergsson, GKG, F (78 76) +10