Fannar Ingi Steingrímsson, GHG. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 2. 2013 | 18:45

Íslandsbankamótaröðin (2): Sigurvegarinn Fannar Ingi á 61 höggi lokahringinn!!!

Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, átti alveg hreint magnaðan hring á 2. móti Íslandsbankamótaraðarinnar, sem lauk í dag á Strandarvelli á Hellu.   Hann lauk keppni á ótrúlega, stórglæsilegu skori upp á 9 undir pari, 61 höggi!!! Á hringnum fékk Fannar Ingi hvorki fleiri né færri en 8 fugla og 1 skolla. Auk þess fór hann holu í höggi á par-3 8. braut Strandarvallar. Glæsilegt!!!  Samtals lék Fannar Ingi á 3 undir pari, 137 höggum (76 61). Það kemur ekki á óvart að Fannar Ingi var á besta skorinu yfir mótið í heild!

Birgir Björn Magnússon GK, varð að láta sér lynda 2. sætið, en hann leiddi í gær á 68 höggum og var sá eini sem þá spilaði undir 70.  Á seinni hringnum var Birgir Björn á 71 höggi en það dugði ekki til sigurs að þessu sinni. Samtals lék Birgir Björn því á 1 undir pari, 139 höggum (68 71).

Í 3. sæti varð síðan Kristófer Orri Þórðarson, GKG, á samtals 1 yfir pari, 141 höggi (72 69).  Hörkukeppni í drengjaflokki!

Sjá má úrslitin í drengjaflokki, þ.e. flokki drengja 15-16 ára hér að neðan:

1 Fannar Ingi Steingrímsson GHG 2 F 30 31 61 -9 76 61 137 -3
2 Birgir Björn Magnússon GK 1 F 37 34 71 1 68 71 139 -1
3 Kristófer Orri Þórðarson GKG 2 F 37 32 69 -1 72 69 141 1
4 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 1 F 36 36 72 2 70 72 142 2
5 Gísli Sveinbergsson GK 0 F 36 36 72 2 71 72 143 3
6 Tumi Hrafn Kúld GA 4 F 35 34 69 -1 75 69 144 4
7 Theodór Ingi Gíslason GR 4 F 35 35 70 0 76 70 146 6
8 Henning Darri Þórðarson GK 1 F 37 35 72 2 75 72 147 7
9 Helgi Snær Björgvinsson GK 6 F 39 34 73 3 76 73 149 9
10 Jón Valur Jónsson GR 8 F 39 35 74 4 77 74 151 11
11 Einar Snær Ásbjörnsson GR 4 F 38 37 75 5 77 75 152 12
12 Guðmundur Sigurbjörnsson GL 7 F 35 38 73 3 79 73 152 12
13 Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 5 F 39 39 78 8 74 78 152 12
14 Sigurjón Guðmundsson GKG 7 F 38 35 73 3 80 73 153 13
15 Eggert Kristján Kristmundsson GR 4 F 41 37 78 8 76 78 154 14
16 Björn Óskar Guðjónsson GKJ 2 F 37 37 74 4 81 74 155 15
17 Andri Páll Ásgeirsson GOS 7 F 39 41 80 10 77 80 157 17
18 Kristján Frank Einarsson GR 8 F 39 40 79 9 79 79 158 18
19 Arnór Harðarson GR 8 F 41 38 79 9 80 79 159 19
20 Hákon Örn Magnússon GR 9 F 38 39 77 7 82 77 159 19
21 Kristófer Dagur Sigurðsson GKG 8 F 43 35 78 8 83 78 161 21
22 Elís Rúnar Elísson GKJ 6 F 39 41 80 10 81 80 161 21
23 Fannar Már Jóhannsson GA 8 F 43 39 82 12 80 82 162 22
24 Aron Skúli Ingason GK 7 F 41 41 82 12 80 82 162 22
25 Jóhannes Snorri Ásgeirsson GS 7 F 40 40 80 10 83 80 163 23
26 Bragi Arnarson GKJ 9 F 44 40 84 14 79 84 163 23
27 Elvar Ingi Hjartarson GSS 7 F 44 42 86 16 77 86 163 23
28 Bjarki Geir Logason GK 7 F 41 38 79 9 85 79 164 24
29 Róbert Smári Jónsson GS 5 F 42 39 81 11 83 81 164 24
30 Vikar Jónasson GK 5 F 41 39 80 10 84 80 164 24
31 Elías Björgvin Sigurðsson GKG 9 F 41 41 82 12 82 82 164 24
32 Axel Fannar Elvarsson GL 8 F 39 37 76 6 89 76 165 25
33 Arnar Ingi Njarðarson GR 8 F 40 42 82 12 85 82 167 27
34 Friðrik Berg Sigþórsson GL 4 F 43 41 84 14 84 84 168 28
35 Hlynur Bergsson GKG 8 F 39 41 80 10 88 80 168 28
36 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 8 F 43 41 84 14 85 84 169 29