F.v.: KInga Korpak, GS, 2. sæti; Íslandsmeistarinn í höggleik 2013 Ólöf María Einarsdóttir, GHD og Sunna Björk Karlsdóttir, GR, 3. sæti. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2013 | 17:30

Íslandsbankamótaröðin (6): Ólöf María tvöfaldur Íslandsmeistari 2013

Ólöf María Einarsdóttir, GHD, tryggði sér nú rétt í þessu Íslandsmeistaratitilinn í höggleik 14 ára og yngri stelpna.  Fyrir er Ólöf María Íslandsmeistari í holukeppni í stelpuflokki og hefir hún því unnið báða titlana á árinu.

Samtals lék Ólöf María á 35 yfir pari, 251 höggi (87 85 79) – hún bætti sig með hverjum hring og braut m.a. 80 í dag – Glæsilegt hjá Íslandsmeistaranum!

Í 2. sæti varð heimakonan unga Kinga Korpak, en hún er aðeins 9 ára! Kinga lék á 55 yfir pari, 271 höggi (92 92 87) – Flott hjá Kingu!!!

Í 3. sæti varð síðan Sunna Björk Karlsdóttir, GR, en hún lék á samtals 60 yfir pari, 276 höggum (95 89 92). Góður árangur þetta!!!

Sjá má heildarstöðuna í stelpuflokki á Íslandsmótinu í höggleik hér að neðan:

1 Ólöf María Einarsdóttir GHD 7 F 39 40 79 7 87 85 79 251 35
2 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR 15 F 47 45 92 20 94 92 186 42
3 Kinga Korpak GS 17 F 46 41 87 15 92 92 87 271 55
4 Sunna Björk Karlsdóttir GR 15 F 45 47 92 20 95 89 92 276 60
5 Hekla Sóley Arnarsdóttir GK 17 F 51 44 95 23 100 90 95 285 69
6 Sóley Edda Karlsdóttir GR 16 F 48 45 93 21 103 90 93 286 70
7 Hulda Clara Gestsdóttir GKG 20 F 53 48 101 29 110 99 101 310 94
8 Herdís Lilja Þórðardóttir GKG 23 F 48 50 98 26 112 100 98 310 94
9 Eva María Gestsdóttir GKG 28 F 62 61 123 51 108 111 123 342 126