Kristófer Orri, GKG. Mynd: Helga Björnsdóttir.
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2013 | 20:45

Íslandsbankamótaröðin (6): Kristófer Orri á besta skori Íslandsmótsins á 1. degi!!!

Kristófer Orri Þórðarson, GKG, lék Hólmsvöll í Leiru á glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum og er það því efsti maður í drengjaflokki sem er á besta skori 1. dags á Íslandsmótinu í höggleik unglinga.

Kristófer Orri fékk hvorki fleiri né færri en 5 fugla, 11 pör og 2 skolla og glæsiskor upp á 69 högg!!!

Í 2. sæti á litlu síðra skori er klúbbmeistari Golfklúbbsins Keilis 2013, Birgir Björn Magnússon, en hann lék Leiruna á 1 undir pari, 71 höggi!  Á hring sínum fékk Birgir Björn 4 fugla, 11 pör og 3 skolla.

Í 3. sæti í drengjaflokki eru síðan 3 sem allir léku á parinu í dag: Gísli Sveinbergsson, GK, Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG  og Henning Darri Þórðarson, GK.

Einn í 6. sæti er síðan Fannar Ingi Steingrímsson, GHG,  en hann var á 2 yfir pari, 74 höggum.

Sjá má heildarstöðuna í drengjaflokki eftir 1. dag á Íslandsmótinu í höggleik unglinga hér að neðan:

1 Kristófer Orri Þórðarson GKG 1 F 35 34 69 -3 69 69 -3
2 Birgir Björn Magnússon GK 0 F 36 35 71 -1 71 71 -1
3 Gísli Sveinbergsson GK 0 F 39 33 72 0 72 72 0
4 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 2 F 37 35 72 0 72 72 0
5 Henning Darri Þórðarson GK 3 F 36 36 72 0 72 72 0
6 Fannar Ingi Steingrímsson GHG 0 F 36 38 74 2 74 74 2
7 Róbert Smári Jónsson GS 6 F 38 37 75 3 75 75 3
8 Eggert Kristján Kristmundsson GR 5 F 38 37 75 3 75 75 3
9 Sindri Þór Jónsson GR 5 F 39 37 76 4 76 76 4
10 Víðir Steinar Tómasson GA 5 F 41 36 77 5 77 77 5
11 Arnór Harðarson GR 8 F 40 38 78 6 78 78 6
12 Aron Skúli Ingason GK 6 F 40 38 78 6 78 78 6
13 Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 4 F 39 39 78 6 78 78 6
14 Tumi Hrafn Kúld GA 4 F 44 35 79 7 79 79 7
15 Jón Valur Jónsson GR 9 F 39 40 79 7 79 79 7
16 Elvar Ingi Hjartarson GSS 7 F 42 38 80 8 80 80 8
17 Úlfur Þór Egilsson GR 8 F 41 39 80 8 80 80 8
18 Jóhannes Guðmundsson GR 7 F 39 41 80 8 80 80 8
19 Andri Páll Ásgeirsson GOS 5 F 44 37 81 9 81 81 9
20 Vikar Jónasson GK 6 F 42 39 81 9 81 81 9
21 Kristófer Dagur Sigurðsson GKG 8 F 42 39 81 9 81 81 9
22 Hákon Örn Magnússon GR 8 F 40 41 81 9 81 81 9
23 Theodór Ingi Gíslason GR 3 F 39 42 81 9 81 81 9
24 Friðrik Berg Sigþórsson GL 5 F 46 36 82 10 82 82 10
25 Einar Snær Ásbjörnsson GR 4 F 42 40 82 10 82 82 10
26 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 9 F 42 40 82 10 82 82 10
27 Björn Óskar Guðjónsson GKJ 4 F 42 40 82 10 82 82 10
28 Helgi Snær Björgvinsson GK 5 F 43 40 83 11 83 83 11
29 Sigurjón Guðmundsson GKG 8 F 42 41 83 11 83 83 11
30 Guðmundur Sigurbjörnsson GL 7 F 47 37 84 12 84 84 12
31 Arnar Ingi Njarðarson GR 9 F 46 38 84 12 84 84 12
32 Jóel Gauti Bjarkason GKG 7 F 42 42 84 12 84 84 12
33 Kristján Frank Einarsson GR 7 F 50 36 86 14 86 86 14
34 Daði Valgeir Jakobsson GKG 8 F 45 42 87 15 87 87 15
35 Elías Björgvin Sigurðsson GKG 9 F 44 43 87 15 87 87 15
36 Haukur Ingi Júlíusson GS 8 F 45 43 88 16 88 88 16