Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 11. 2013 | 00:30

Íslandsbankamótaröðin (6): Birgir Björn og Henning deila 1. sætinu eftir 2. dag – Sindri á besta skorinu í drengjaflokki – 66 höggum!!!

Það eru þeir Birgir Björn Magnússon, klúbbmeistari GK 2013 og Henning Darri Þórðarson, GK sem deila 1. sætinu eftir 2. dag Íslandsmótsins í höggleik unglinga í drengjaflokki, báðir á 4 undir pari, 140 höggum.

Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: Golf 1

Birgir Björn Magnússon, GK. Mynd: Golf 1

Birgir Björn hefir samtals leikið á (71 69) átti glæsihring upp á 3 undir pari, 69 högg í dag!

Henning Darri átti líka frábæran hring upp á 4 undir pari, 68 högg í dag og er samtals búinn að leika hringina tvo á (72 68).

Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1.

Henning Darri Þórðarson, GK. Mynd: Golf 1.

Besta skorið á 2. degi yfir mótið í heild átti Sindri Þór Jónsson, GR, en hann lék 2. hring á 6 undir pari 66 glæsihöggum á hring þar sem hann var með hvorki fleiri né færri en 8 fugla!!!

Glæsiskorið kom Sindra Þór upp í 3. sætið, sem hann deilir með Gísla Sveinbergssyni úr GK en báðir eru á 2 undir pari,  140 höggum.

Í 5. sæti er síðan forystumaður 1. dags Kristófer Orri Þórðarson, GKG, á samtals 1 undir pari (69 74).

Sjá má stöðuna í drengjaflokki á Íslandsmótinu í höggleik unglinga hér að neðan: 

1 Henning Darri Þórðarson GK 3 F 36 32 68 -4 72 68 140 -4
2 Birgir Björn Magnússon GK 0 F 34 35 69 -3 71 69 140 -4
3 Sindri Þór Jónsson GR 5 F 33 33 66 -6 76 66 142 -2
4 Gísli Sveinbergsson GK 0 F 36 34 70 -2 72 70 142 -2
5 Kristófer Orri Þórðarson GKG 1 F 39 35 74 2 69 74 143 -1
6 Óðinn Þór Ríkharðsson GKG 2 F 39 35 74 2 72 74 146 2
7 Fannar Ingi Steingrímsson GHG 0 F 39 36 75 3 74 75 149 5
8 Vikar Jónasson GK 6 F 36 34 70 -2 81 70 151 7
9 Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 4 F 37 37 74 2 78 74 152 8
10 Arnór Harðarson GR 8 F 36 38 74 2 78 74 152 8
11 Víðir Steinar Tómasson GA 5 F 40 36 76 4 77 76 153 9
12 Theodór Ingi Gíslason GR 3 F 35 37 72 0 81 72 153 9
13 Róbert Smári Jónsson GS 6 F 38 40 78 6 75 78 153 9
14 Björn Óskar Guðjónsson GKJ 4 F 38 34 72 0 82 72 154 10
15 Eggert Kristján Kristmundsson GR 5 F 41 38 79 7 75 79 154 10
16 Aron Skúli Ingason GK 6 F 42 37 79 7 78 79 157 13
17 Sigurjón Guðmundsson GKG 8 F 38 37 75 3 82 75 157 13
18 Tumi Hrafn Kúld GA 4 F 40 38 78 6 79 78 157 13
19 Kristófer Dagur Sigurðsson GKG 8 F 39 38 77 5 81 77 158 14
20 Friðrik Berg Sigþórsson GL 5 F 38 38 76 4 82 76 158 14
21 Einar Snær Ásbjörnsson GR 4 F 38 39 77 5 82 77 159 15
22 Úlfur Þór Egilsson GR 8 F 37 42 79 7 80 79 159 15
23 Jóhannes Guðmundsson GR 7 F 43 37 80 8 80 80 160 16
24 Elvar Ingi Hjartarson GSS 7 F 41 39 80 8 80 80 160 16
25 Arnar Ingi Njarðarson GR 9 F 40 37 77 5 84 77 161 17
26 Guðmundur Sigurbjörnsson GL 7 F 38 39 77 5 84 77 161 17
27 Hákon Örn Magnússon GR 8 F 40 40 80 8 81 80 161 17
28 Jón Valur Jónsson GR 9 F 44 39 83 11 79 83 162 18
29 Helgi Snær Björgvinsson GK 5 F 45 36 81 9 83 81 164 20
30 Andri Páll Ásgeirsson GOS 5 F 42 42 84 12 81 84 165 21
31 Jóel Gauti Bjarkason GKG 7 F 41 43 84 12 84 84 168 24
32 Ásbjörn Freyr Jónsson GKG 9 F 48 39 87 15 82 87 169 25
33 Daði Valgeir Jakobsson GKG 8 F 41 42 83 11 86 83 169 25
34 Haukur Ingi Júlíusson GS 8 F 41 41 82 10 88 82 170 26
35 Elías Björgvin Sigurðsson GKG 9 F 41 45 86 14 87 86 173 29
36 Kristján Frank Einarsson GR 7 F 46 42 88 16 86 88 174 30