Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 10. 2013 | 23:50

Íslandsbankamótaröðin (6): Anna Sólveig efst í stúlknaflokki eftir 2. dag

Allt er óbreytt í stúlknaflokki eftir 2. dag Íslandsmótsins í höggleik.

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, heldur forystu sinni er samtals búin að spila á 10 yfir pari, 154 höggum (78 76).

Hún á 7 högg á þá sem er í 2. sæti Gunnhildi Kristjánsdóttur, GKG, sem er einnig heldur sínu en hún var einnig í 2. sæti í gær.

Gunnhildur er búin að leika á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (81 80) og aðeins 1 höggi á eftir henni í 3. sæti er Sara Margrét Hinriksdóttir, GK.

Staðan í stúlknaflokki eftir 2. dag Íslandsmótsins í höggleik er eftirfarandi: 

1 Anna Sólveig Snorradóttir GK 4 F 37 39 76 4 78 76 154 10
2 Gunnhildur Kristjánsdóttir GKG 7 F 42 38 80 8 81 80 161 17
3 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 9 F 43 38 81 9 81 81 162 18
4 Bryndís María Ragnarsdóttir GK 13 F 43 39 82 10 82 82 164 20
5 Særós Eva Óskarsdóttir GKG 8 F 41 43 84 12 86 84 170 26
6 Helga Kristín Einarsdóttir NK 10 F 45 41 86 14 89 86 175 31
7 Helga Kristín Gunnlaugsdóttir NK 11 F 45 40 85 13 93 85 178 34
8 Stefanía Elsa Jónsdóttir GA 13 F 47 41 88 16 90 88 178 34
9 Hrafnhildur Guðjónsdóttir GO 15 F 47 43 90 18 98 90 188 44
10 Hanna María Jónsdóttir GK 17 F 52 46 98 26 96 98 194 50