Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2018 | 20:00

Íslandsbankamótaröðin (4): Tristan Snær Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki

Það var Tristan Snær Viðarsson, GM, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fór á Jarðarsvell á Akureyri, sl. helgi.

Tristan Snær vann úrslitaviðureignina í sínum flokki gegn Jóhannesi Sturlusyni, GKG 1&0.

Í 3. sæti varð Óskar Páll Valsson, GA, en hann sigraði í keppni um 3. sætið – vann Heiðar Snæ Bjarnason, GOS 8&6.

Sjá má skema yfir alla leiki frá 16 manna úrslitum að úrslitaleikjunum hér að neðan: