Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2018 | 17:00

Íslandsbankamótaröðin (4): Amanda Íslandsmeistari 17-18 ára stúlkna

Íslandsmeistaramót unglinga í holukeppni fór fram sl. helgi á Jaðarsvelli á Akureyri.

Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára stúlkna er Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD.

Hún vann Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur, GOS 1&0 í úrslitaleik um gullið.

Í 3. sæti varð síðan nýbakaður klúbbmeistari kvenna í GKG, Árný Eik Dagsdóttir.

Á skemanu hér fyrir neðan má sjá leikina allt frá 16 manna úrslitaleikjunum og að úrslitum: