Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2018 | 08:01

Ísland í 40. sæti e. 2. dag HM áhugakylfinga

Heimsmeistaramót áhugakylfinga í kvennaflokki hófst miðvikudaginn 29. ágúst og er keppt á Írlandi. Alls eru 57 þjóðir sem taka þátt og þar á meðal er landslið Íslands sem er skipað þremur leikmönnum. Keppt er um Espirito Santo Trophy á þessu móti sem fram fer nú fram í 28. sinn.

HM fer fram á Carton House þar sem allar aðstæður eru í hæsta gæðaflokki. Keppt er á tveimur keppnisvöllum, sem bera nöfnin Montgomerie og O’Meara.

Skor keppenda er uppfært hér:

Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir skipa landslið Íslands. Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, er með í för sem liðsstjóri. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensku kylfingarnir keppa á HM áhugakylfinga.

Ísland er í 40. sæti eftir 2. keppnisdag af alls fjórum.

Helga Kristín Einarsdóttir 73 högg +1
Saga Traustadóttir 75 högg +3
Skor Ragnhildar Kristinsdóttur taldi ekki, 85 högg +13.