
Ísland í 17. sæti á European Young Masters eftir 2. dag
Ísland á 4 keppendur á European Young Masters en mótið stendur dagana 25.-28. júlí 2013 í Hamburger Golf Club í Þýskalandi.
Íslensku keppendurnir eru þau Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, Birta Dís Jónsdóttir, GHD, Gísli Sveinbrgsson, GK og Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG.
European Young Masters er fyrst og fremst einstaklingskeppni þar sem leiknar eru 54 holur í höggleik.
Samhliða einstaklingskeppninni fer einnig fram liðakeppni það sem þrjú bestu skorin af fjórum telja frá hverju landi.
Í einstaklingskeppninni í drengjaflokki er Gísli Sveinbergsson GK í 22. sæti eftir 2. dag á samtals 149 höggum (75 74) og Óðinn Þór Ríkharðsson, GKG í 32. sæti á 152 höggum (75 77). Alls eru 52 keppendur í drengjaflokki.
Í efsta sæti er Bradley Moore frá Englandi á samtals 9 undir pari, 133 höggum (67 66) og í 2. sæti eru Giovanni Tadiotto frá Belgíu og Pedro Almeida frá Portugal á samtals 5 undir pari, 137 höggum, hvor; Tadiotto (70 67) og Almeida (66 71).
Sjá má stöðuna í einstaklingskeppni í drengjaflokki á European Young Masters með því að SMELLA HÉR:
Í einstaklingskeppninni í telpnaflokki er Ragnhildur Kristinsdóttir, GR í 23. sæti á samtals 150 höggum (76 74) og Birta Dís Jónsdóttir, GHD í 45. sæti á samtals 170 höggum (84 86), en taka ber fram að þetta er í fyrsta skipti sem Birta Dís keppir erlendis fyrir Íslands hönd og reynslan því gríðarlega dýrmæt!
Í telpnaflokki er Covadonga Sanjuan frá Spáni efst á samtals 6 undir pari eftir 2 hringi (67 69) og hefir hún talsvert forskot eða 6 högg á næsta keppanda sem er í 2. sæti Söndru Nordaas frá Noregi, sem samtals hefir spilað á sléttu pari, samtals 142 höggum (71 71).
Sjá má stöðuna í einstaklingskeppni í telpnaflokki á European Young Masters með því að SMELLA HÉR:
Í liðakeppninni er íslenska liðið í 17. sæti eftir 2. dag af 24 liðum.
Til þess að sjá skorið í liðakeppninni eftir 2. dag á European Young Masters SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 9. 2022 | 14:00 Ágúst Ársælsson klúbbmeistari í Svíþjóð
- ágúst. 8. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Webb Simpson —— 8. ágúst 2022
- ágúst. 8. 2022 | 08:00 Evróputúrinn: Callum Shinkwin sigraði á Cazoo Open
- ágúst. 7. 2022 | 20:00 AIG Women’s Open 2022: Ashleigh Buhai sigraði!!!
- ágúst. 7. 2022 | 17:30 Íslandsmótið 2022: Kristján Þór og Perla Sól Íslandsmeistarar 2022!!!
- ágúst. 7. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2022
- ágúst. 7. 2022 | 15:15 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-3 og Bjarki T-35 á Vierumäki Finnish Challenge
- ágúst. 7. 2022 | 14:50 Íslandsmótið 2022: Perla Sól og Kristján Þór leiða eftir 3. dag
- ágúst. 7. 2022 | 14:30 Íslandsmótið 2022: Lokatilraun til að spila 4. hring verður gerð kl. 16:30
- ágúst. 6. 2022 | 22:00 Íslandsmótið 2022: Hulda Clara og Sigurður Bjarki jöfnuðu vallarmetin á Vestmannaeyjavelli
- ágúst. 6. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (31/2022)
- ágúst. 6. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Doug Ford, Pétur Steinar Jóhannesson og Michel Besancenay – 6. ágúst 2022
- ágúst. 5. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gylfi Rútsson – 5. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2022
- ágúst. 4. 2022 | 14:00 Forsetabikarinn 2022: Davis Love III útnefnir Simpson og Stricker sem varafyrirliða