Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 18:00

Ísland endaði í 39. sæti á HM áhugakylfinga

Heimsmeistaramóti áhugakylfinga í kvennaflokki lauk í dag á Írlandi. Bandaríkin fögnuðu HM -titlinum með miklum yfirburðum. Ísland endaði í 39. sæti af alls 57 þjóðum sem tóku þátt. Leikmenn Íslands bættu leik sinn jafnt og þétt út allt mótið.

Sjá má lokastöðuna á heimsmeistaramóti áhugakylfinga í kvennaflokki með því að SMELLA HÉR: 

Keppt er í liðakeppni og einnig gildir árangur keppenda í einstaklingskeppni. Þrír keppendur eru í hverju liði og telja tvö bestu skorin í hverri umferð.

Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir léku fyrir Íslands hönd. Þetta var frumraun þeirra allra á HM. Helga Kristín endaði í 92. sæti í einstaklingskeppninni á +13 samtals (79-73-76-75) 303 högg.
Saga endaði í 131. sæti á +23 samtals (76-75-83-79) 313 högg.
Ragnhildur Kristinsdóttir endaði í 144. sæti á +29 samtals (85-85-75-74) 319 högg.

Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, var með í för sem liðsstjóri. Keppt var um Espirito Santo Trophy á þessu móti sem fram fór nú fram í 28. sinn. Bandaríkin eru með 50% vinningshlutfall á þessu móti því Bandaríkin hafa unnið HM 14 sinnum alls.

HM fór fram á Carton House þar sem allar aðstæður eru í hæsta gæðaflokki. Keppt var á tveimur keppnisvöllum, sem bera nöfnin Montgomerie og O’Meara.

4. keppnisdagur:

Ragnhildur Kristinsdóttir, 74 högg +2
Helga Kristín Einarsdóttir, 75 högg +3
Skor Sögu Traustadóttur taldi ekki 79 högg +7

Lokastaðan:

1. Bandaríkin -29 samtals
2. Japan -19 samtals
3. Suður-Kórea -18 samtals
4. Kína -14 samtals
5. Þýskaland -11 samtals
6. Ítalía -10 samtals
7. Kanada -7
8.-9. Danmörk -6 samtals
8.-9. Mexíkó -6 samtals
10. Noregur -5 samtals
11.-13. Svíþjóð -4 samtals
11.-13. Sviss -4 samtals
11.-13. Írland -4 samtals
14. Ástralía -3 samtals
15.-16. Suður-Afríka -2 samtals
15.-16. Austurríki -2 samtals
17. Spánn -1 samtals
18. England par samtals
19. Nýja Sjáland +2 samtals
20.-21. Paragvæ +3 samtals
20.-21. Frakkland +3 samtals
22. Taívan +4 samtals
23. Holland +5 samtals
24. Skotland +6 samtals
25.-26. Venesúela +7 samtals
25.-26. Indland +7 samtals
27. Taíland +8 samtals
29. Kólumbía +10 samtals
30. Argentína +11 samtals
31.-33. Finnland +12 samtals
31.-33. Belgía +12 samtals
31.-33. Tékkland +12 samtals
34. Hong Kong +13 samtals
35. Dómíníska Lýðveldið +16 samtals
36. Gvatemala +17 samtals
37.-38. Marókkó +21 samtals
37.-38. Malasía +21 samtals
39. Ísland +23 samtals
40.-41. Perú +26 samtals
40.-41. Portúgal +26 samtals
42. Chile +27 samtals
43. Slóvenía +28 samtals
44. Úrúgvæ +31 samtals
45. Wales +32 samtals
46. Slóvakía +34 samtals
47. Tyrkland +36 samtals
48. Pólland +40 samtals
49. Singapúr +42 samtals
50. Brasilía +49 samtals
51. Litháen +53 samtals
52. Lettland +70 samtals
53. Guam +76 samtals
54. Búlgaría +81 samtals
55. Túnis +91 samtals
56. Úkraína +101 samtals
57. Líbanon +104 samtals