Ingvar Andri Magnússon, GR. Ingvar Andri efstur, Daníel Ísak í 2. sæti og Dagbjartur T-29 á Scottish Boys Open Championship e. 1. dag
Ingvar Andri Magnússon, GR, er einn 3 íslenskra drengja, sem þátt taka í Scottish Boys Open Championship (einnig nefnt Opna skoska meistaramótið u. 18 ára).
Mótið hófst í dag á Monfieth linksaranum í Skotlandi og stendur 12.-14. apríl 2017. Þátttakendur eru 144.
Eftir 1. dag er Ingvar Andri efstur, lék 1. hring á glæsilegum 2 undir pari, 69 höggum þar sem hann fékk 5 fugla, 10 pör og 3 skolla.
Tveir aðrir íslenskir drengir taka þátt í mótinu: Daníel Ísak Steinarson, GK. sem er í 2. sæti, en hann lék á 1 undir pari, 70 höggum. Glæsilegt hjá þeim Ingvari Andra og Daníel Ísak að vera í efstu tveimur sætunum í svona stóru móti!!!
Þriðji íslenski keppandinn er Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, en hann lék 1. hring sinn á 6 yfir pari, 77 höggum og er jafn öðrum í 29. sæti eða T-29. Dagbjartur er meðal yngstu þátttakanda aðeins 14 ára og er árangur hans því glæsilegur, en mótið er einnig eitt af hans fyrstu erlendis og því dýrmætt í reynslubankann. Vel gert hjá Dagbjarti!!!
Sjá má stöðuna á Scottish Boys Open Championship með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
