Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2015 | 09:00

In Gee Chun sigraði á US Women´s Open

Það var tiltölulega óþekkt stúlka frá S-Kóreu, In Gee Chun, sem sigraði á Opna bandaríska kvenrisamótinu, því 70. frá upphafi í gær, 12. júlí 2015.

Chun lék á samtals 8 undir pari, 272 höggum (68 – 70 – 68 – 66) og er $810,000.00 ríkari – en verðlaunafé er með mesta móti í kvenrisamótunum, líkt og hjá körlunum.

„Í byrjun þessa árs spilaði ég í 4 mótum á LPGA,“ sagði þessi geðþekka stúlka og sigurvegari eftir sigurinn á Opna bandaríska. „Ég hlaut góða reynslu í þessum mótum sem nýttust mér til 3 sigra í S-Kóreu og til eins sigurs í Japan.  Með öllum þessum sigrum, fékk ég mikið sjálfsöryggi í þetta mót. Þess vegna gat ég notið hvers einasta andartaks í þessu móti.

Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir á samtals 7 undir pari, varð Amy Yang landa Chun, sem búin var að vera í forystu allt mótið.

Í 3. sæti urðu síðan núverandi og fyrrverandi nr. 1 á Rolex-heimslista kvenkylfinga Inbee Park og Stacy Lewis á samtals 5 undir pari, hvor.

Fimmta sætinu deildi síðan hópur 6 kylfinga þ.á.m. Brooke Henderson frá Kanada og Morgan Pressel frá Bandaríkjunum; allar á 3 undir pari. Ein í 11. sæti varð síðan Michelle Wie á samtals 2 undir pari – en hún átti titil að verja í mótinu.

Til þess að sjá lokastöðuna á US Women´s Open SMELLIÐ HÉR: