![](https://www.golf1.is/wp-content/uploads/2012/12/1-MerkiÍSÍ-630x517.jpg)
Iðkendatölur ÍSÍ sýna að golf er sú íþrótt sem er næstmest stunduð á Íslandi á eftir knattspyrnu
Í lok síðasta mánaðar birti ÍSÍ iðkendatölur sínar. Hér er textinn sem finna má á heimasíðu ÍSÍ.
„Iðkendatölur ársins 2011 eru nú komnar út. Örlítil fækkun iðkana var á milli áranna 2010 og 2011 eða um 0,5% en samtals voru 118.374 iðkanir innan ÍSÍ árið 2011. 46% iðkana voru stundaðar af 15 ára og yngri. 61% iðkana voru stundaðar af körlum og um 39% af konum. Þegar kynjamunur í yngri hóp er skoðaður er munurinn minni, um 46% hjá stúlkum á móti 54% hjá drengjum. Þátttaka í knattspyrnu var mest með 19.747 iðkendur, þá kemur golf með 16.777 iðkendur og hestaíþróttir með 11.270 iðkendur. Mesta hlutfallslega aukningin var í lyftingum en þar fór fjöldi iðkenda úr 37 á árinu 2010 í 293 iðkendur á árinu 2011.
Að baki iðkanafjölda eru rúmlega 86.000 einstaklingar sem jafngildir því að rúm 27% þjóðarinnar stundi íþróttir með íþróttafélagi innan ÍSÍ og er það nánast óbreytt hlutfall frá árinu 2010.
Hægt er að sjá nánari upplýsingar um iðkendatölur ársins 2011 með því að SMELLA HÉR:
Ítarlegt tölfræðirit er í vinnslu hjá ÍSÍ og er stefnt að því að það verði gefið út fyrir íþróttaþing í apríl á næsta ári.
Heimild: ÍSÍ
- júlí. 26. 2024 | 23:45 Evrópumót einstaklinga: Íslandsmeistarinn spilar ein íslensku keppendanna lokahringinn
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Íslandsmót golfklúbba: GA Íslandsmeistari í 2. deild kvenna
- júlí. 26. 2024 | 23:30 Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Arason og Lucinda Grímsdóttir – 26. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 21:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erla Pétursdóttir -25. júlí 2024
- júlí. 25. 2024 | 20:30 PGA: Horschel dro sig úr 3M Open
- júlí. 25. 2024 | 20:00 Sports Illustrated með umfjöllun um Arctic Open á Akureyri
- júlí. 24. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Björn Ólafur Ingvarsson – 24. júlí 2024
- júlí. 24. 2024 | 11:00 GKB: Brynhildur og Andri Jón klúbbmeistarar 2024
- júlí. 24. 2024 | 09:00 Íslandsmótið 2024: Aron Emil hlaut Björgvinsskálina
- júlí. 24. 2024 | 07:00 GSE: Lovísa Huld og Hrafn klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 19:00 GVS: Heiður Björk og Helgi klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:50 GE: Halldóra Guðríður og Magnús klúbbmeistarar 2024
- júlí. 23. 2024 | 17:00 Íslandsmótið 2024: Hulda Clara sú fyrsta sem fær Guðfinnubikarinn
- júlí. 23. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Harris English —- 23. júlí 2024
- júlí. 23. 2024 | 12:06 Opna breska 2024: Hvað var í sigurpoka Xander Schauffele?