So Yeon Ryu
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2015 | 12:00

Hver er kylfingurinn: So Yeon Ryu?

So Yeon Ryu, frá Suður-Kóreu, sigraði í gær, 15. mars 2015 á World Ladies Championship í Haikou á Hainan, í Kína.

Það eru eflaust ekki margir sem kunna deili á þessum frábæra kylfingi frá Suður-Kóreu, en hún er samt búin að sigra á mörgum góðum kvennamótum á stærstu mótaröðum heims.

So Yeon Ryu

So Yeon Ryu

Hver er kylfingurinn So Yeon Ryu?

So Yeon Ryu (Kóreanska 유소연, RR Ryu So-yeon, MR Ryu Soyŏn, borið fram [ɾju sʰojʌn]; fæddist 29 júní 1990 og er því 24 ára. Hún á því sama afmælisdag og GKG-ingarnir Egill Ragnar Gunnarsson og Jóel Gauti Bjarkason, sem jafnframt er golfpenni, með meiru.  Í dag spilar Ryu bæði á LPGA Tour og á  LPGA of Korea Tour. Meðal stærsta sigurs hennar er sigur 2011 á U.S. Women’s Open risamótinu.

So Yeon Ryu sigraði á US Women´s Open risamótinu 2011

So Yeon Ryu sigraði á US Women´s Open risamótinu 2011

Atvinnumennskan
Ryu gerðist atvinnumaður árið 2007, þá aðeins 17 ára. Fyrsti sigur hennar sem atvinnumanns kom í febrúar 2008 á hinum bandaríska Cactus Tour, þar sem hún átti 6 högg á næsta keppanda. Sama ár byrjaði Ryu að keppa á  LPGA of Korea, og sigraði í 1. mótinu sem hún tók þátt í þar:  the Sports Seoul Open.

Þann 11. júlí 2011 vann Ryu stærsta sigur sinn til þessa þ.e. U.S. Women’s Open risamótið. Á 18. holu lokahringsins, sem var erfiðasta hola mótsins, var hún 1 höggi á eftir forystukonunni á mótinu, löndu sinni  Hee Kyung Seo, en hún átti frábært aðhögg, setti boltann aðiens 2 metra frá holu og setti niður fuglapútt og knúði þar með fram bráðabana.  Ryu vann síðan 3 holu bráðabana við löndu sína, með fugli á 3. og síðustu holunni.

Ryu sigraði í 2. skiptið á (bandaríska) LPGA Tour árið 2012 á  Jamie Farr Toledo Classic. Þó enn ætti eftir að spila eitt mót þá var Ryu þarna komin með nægilega marga sigra til þess að verða útnefnd nýliði ársins.

So Yeon Ryu sigurvegari Jamie Farr mótsins - en það var 2. sigur hennar á LPGA

So Yeon Ryu sigurvegari Jamie Farr mótsins – en það var 2. sigur hennar á bandaríska LPGA

Þann 23. júní 2013 tapaði Ryu á móti enn annarri löndu sinni, fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum á the Walmart NW Arkansas Championship. Park náði fugli á 1 holu bráðabanans og sigraði eftir að Ryu náði einungis pari.  Þann 15. mars 2015 hefndi Ryu hins vegar ófaranna frá 2013 og stal sigrinum af Park, en Inbee Park var búin að leiða á World Ladies Championship allra 3 fyrstu keppnisdagana og munaði aðeins 1 höggi á Ryu og Park.

Einkalíf
Ryu var í tímum í Yonsei University meðan hún keppti fullum fetum á LPGA Tour. Hún útskrifaðist úr háskólanum árið 2013 með gráðu í íþróttaviðskiptum (ens.: sports business).