Hver er kylfingurinn: Seung-yul Noh?
Noh Seung-yul frá Suður-Kóreu er í 1. sæti á Zurich Classic fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í kvöld.
Seung-yul fæddist í Gangwon-do í Suður-Kóreu, 29. maí 1991 og er því 22 ára. Seung-yul byrjaði að spila golf 7 ára eftir að pabbi hans gaf honum fyrsta settið. Seung-yul æfði sig m.a. með því að slá bolta á ströndinni nálægt heimili sínu í Seoul áður en hann fór í skólann og eftir að hann kom heim úr skólanum varði hann öllum tíma sínum á æfingasvæðinu. Seung-yul spilaði líka tennis, fótbolta og hafnarbolta áður en hann sneri athyglinni alfarið að golfi. Hann gerðist síðan atvinnumaður 9 árum síðar, aðeins 16 ára, árið 2007. Það ár komst hann í gegnum Q-school Asíutúrsins og spilaði keppnistímabilið 2008 á þeim túr. Hann vann Midea China Classic á fyrsta keppnistímabili sínu og var nýliði ársins 2008 á Asíutúrnum.
Árið 2010 vann hann Maybank Malaysian Open sem var sameiginlegt mót Asíutúrsins og Evrópumótaraðarinnar. Með þessum sigri varð hann yngsti sigurvegari Evrópumótaraðarinnar (18 ára, 282 daga) á eftir Danny Lee (18 ára, 213 daga). Árið 2010 varð Seung-yul í 1. sæti á peningalista Asíutúrsins og í 34. sæti á Order of Merit á Evrópumótaröðinni.
Seung-yul stundaði nám við Kóreu háskóla.
Fróðleiksmolar um Seung-yul:
Hann ferðast aldrei án iPads-ins síns og uppáhalds vefsíðan hans er twitter.com. Uppáhaldslið Seung-yul er Manchester United. Uppáhaldssjónvarpsþáttur hans er „Unlimited Challenge,“ sem er vinsæll þáttur í Suður-Kóreu. Seung-yul er alltaf með orkustykki í pokanum sem nesti. Góðgerðarmál sem Seung-yul styrkir er háskólasjúkrahúsið í Kóreu (Korean University Hospital).
Í desember 2011, varð Noh T-3 í PGA Tour Q-School og ávann sér keppnisrétt á PGA túrnum á 2012 keppnistímabilinu. Þetta var í fyrsta sinn sem Noh hlaut fullan keppnisrétt á PGA Tour.
Árið 2012 varð hann í 49. sæti á peningalista PGA Tour og 37. í FedEx Cup umspilinu og hélt því kortinu sína á 2013 keppnistímabilinu, en á því ári varð hann 153. á peningalistanum og komst ekki í FedEx Cup umspilið. Noh tók þá þátt í Web.com Tour Finals; varð í 4. sæti og vann aftur kortið sitt fyrir 2014 keppnistímabilið.
Sem stendur er Seung-yul í 176. sæti heimslistans og er vís til þess að skjótast upp listann eftir helgina takist honum að sigra á Zurich Classic.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
