
Hver er kylfingurinn: Rory McIlroy? 8. grein af 8
2012
Hér er komið að síðustu greininni í greinaröðinni um Rory McIlroy.
Hér í lokin verður farið yfir það helsta á ferli hans á þessu ári, 2012. Fyrsta mót Rory á árinu var Abu Dhabi HSBC Golf Championship, þ.e. á Mið-Austurlandasveiflu Evróputúrsins í lok janúar. Mótið var mikið í kastljósinu vegna þess að Tiger spilaði á því og Luke Donald, þá nr. 1 í heimi og fyrrverandi nr. 2 í heimi, Lee Westwood. Rory spilaði með Woods og Donald í aðalhópnum fyrstu 2 dagana. Skor hans var 67-72-68 og í upphafi lokahringsins var hann í 3. sæti á eftir forystumönnunum Robert Rock og Tiger. Rory lauk leik -3 undir pari, á 69 höggum og varð einn í 2. sæti á eftir sigurvegarnum, Robert Rock.
Næst tók Rory þátt í Omega Dubai Desert Classic þar sem hann varð T-5, 4 höggum á eftir sigurvegaranum Rafael Cabrera-Bello.
Þar næst var Rory í heimsmótinu í holukeppni í Arizona þar sem hann vann leiki sína gegn George Coetzee, Anders Hanson, Miguel Angel Jimenex, Sang-Moon Bae og Lee Westwood og var í úrslitum gegn Hunter Mahan. Eftir 10 holur var Rory 4 holum undir og náði að minnka muninn í 2 holur á 16. Á 17. holunni varð jafnt, sem þýddi að Mahan vann. Mikill spenningur var í kringum mótið því með sigri gat Rory náð 1. sæti heimslistans. Annað sætið nægði Rory samt í 2. sæti heimslistans og eins varð hann í efsta sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar.
Eftir sigur á Honda Classic síðustu helgi komst Rory í fyrsta sinn á ferli sínum í 1. sæti heimslistans, en sigurinn var sá 3. á PGA Tour.
Nú í kvöld er Rory aldeilis að slá í gegn á WGC Cadillac Championship, á Bláa Skrímslinu í Flórída, þar sem hann vann sig upp úr 28. sætinu, sem hann var í eftir 2. dag í 3. sætið, en alls var Rory á – 14 undir pari, samtals 274 höggum (73 69 65 67) og heldur enn fyrst um sinn 1. sæti heimslistans!
Heimild: Wikipedia
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1
- apríl. 10. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elín Illugadóttir —-– 10. apríl 2023
- apríl. 10. 2023 | 13:00 Masters 2023: Jon Rahm: „Þessi var fyrir Seve“
- apríl. 10. 2023 | 00:20 Masters 2023: Sam Bennett hlaut silfurbikarinn
- apríl. 9. 2023 | 23:00 Master 2023: Jon Rahm sigraði!!!
- apríl. 9. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hörður Hinrik Arnarson – 9. apríl 2023