Hver er kylfingurinn: Rod Pampling?
Rod Pampling sigraði í gær, 6. nóvember 2016 á Shriners Hospital for Children Open.
Nafnið Pampling hljómar kunnuglega í eyrum margra en hefir upp á síðkastið ekki sést ofarlega á skortöflum golfmóta. Þannig að hver er kylfingurinn?

Rod Pampling
Rod(ney) Pampling fæddist þann 23. september 1969 í Redcliffe, Queensland í Ástralíu og er því 47 ára.
Hann gerðist atvinnumaður í golfi fyrir 22 árum eða árið 1994. Hann hóf ferilinn á Ástralasíu PGA túrnum, þar sem hann sigraði á Canon Challenge árið 1999.
Hann lék líka á NGA Hooters Tour, sem er minni golfmótaröð í Bandaríkjunum.
Árin 2000 og 2001 spilaði Pampling í 2. deild PGA Tour sem þá hét the Buy.com Tour, og nefnist nú Web.com Tour og hann stóð sig nógu vel seinna keppnistímabilið til þess að ávinna sér fullan keppnisrétt á PGA Tour.
Árið 1999 átti Pampling 71 högga hring á Carnoustie 1. hring Opna breska og var í forystu. En hann var á sögulegum 86 höggum 2. hringinn og komst ekki gegnum niðurskurð.
Pampling sigraði í fyrsta skipti á PGA Tour á The International árið 2004 og síðan sigraði í annað skipti árið 2006 á Bay Hill Invitational, en með því komst hann á topp-50 á heimslistanum.

Rod Pampling sigurvegari Australian Masters
Pampling hefir aðallega verið að spila heima í Ástralíu á sl. árum m.a. sigraði hann í Sportsbet Australian Masters í Huntingdale golfklúbbnum i Melbourne í nóvember 2008, þar sem hann vann Marcus Fraser í 3-holu bráðabana eftir að báðir kylfingar voru jafnir á 12-undir pari 276 höggum eftir hefðbundinn leik. Mótið taldi líka sem mót á Evróputúrnum, þannig að Pampling hlaut 2 ára keppnisrétt á Evróputúrnum.
Eftir erfitt ár 2010 spilaði Pampling 2011 keppnistímabilið með takmarkaðan spilarétt sem fyrrum sigurvegari á túrnum og fleytti sér áfram á boðum styrktaraðila.
Pampling hlaut ævilangan spilarétt á AT&T National úr hendi mótsstjórans Greg McLaughlin eftir að þakka hverjum og einum styrktaraðila í eigin persónu, sem veitti honum spilarétt á 2011 keppnistímabilinu.
Pampling klóraði sig síðan áfram í 124. sæti á peningalista PGA Tour og hlaut kortið sitt með aðeins $2,000 forskot á næsta keppanda. Hann varð síðan 127. á peningalistanum eftir 2012 keppnistímabilið og rétt missti PGA Tour kortið sitt, en þá munaði $26,617 á vinningsfé. Á árunum 2013 – 2015 hefir Pampling sveiflast milli þess að spila á PGA Tour og Web.com Tour.
Nú er 3. sigurinn á PGA tour í höfn, en því fylgir væntanlega spilaréttur á PGA Tour næstu 2 árin.
Besti árangur Pampling í risamóti er T-5 árangur á Masters árið 2005. Alls hefir Pampling sigrað í 7 stórmótum; 3 á PGA Tour, 1 sinni á Evróputúrnum; 2 sinnum á Ástralasíu túrnum og 1 sinni á Web.com.
Pampling býr bæði í Ástralíu og Bandaríkjunum; þ.e. í Brisbane, Ástralíu og í Flower Mound í Texas, Bandaríkjunum.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
