Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2018 | 20:00

Hver er kylfingurinn: Richard McEvoy?

Enski kylfingurinn Richard McEvoy sigraði í gær á Porsche European Open og var þetta 1. sigur hans á Evróputúrnum.

McEvoy er ekki alla daga í golffréttamiðlum þannig að ekki er furða þó spurt sé: Hver er kylfingurinn Richard McEvoy?

Richard McEvoy er fæddur 13. júní 1979 í Shoeburyness á Englandi. McEvoy byrjaði í golfi eftir að vinur pabba hans sem var golfkennari gaf honum kylfur 8 ára gamall, en McEvoy reyndist mjög hæfileikaríkur unglingur. Hann var í sigurliði Breta og Íra í Walker Cup og vann Q-school Evrópumótaraðarinnar 2003 en hélt ekki kortinu sínu 2004.

Hann fékk aftur spilaréttindi sín í lok 2005 í gegnum Áskorendamótaröðina, með sigri á Panasonic Panama Open, sem varð til þess að hann varð í 10. sæti á stigalista Áskorendamótaraðarinnar. Þrátt fyrir að hafa tekið þátt í 29 mótum 2006 á Evrópumótaröðinni, náði hann aðeins niðurskurði 10 sinnum og varð að fara aftur í Q-school í San Roque, þar sem hann náði 23. sætinu. Hann missti aftur kortið sitt næsta tímabili en kom aftur með þvi að ná 9. sætinu á stigalista Challenge Tour eftir mjög stöðugt tímabil þar sem hann var 5 sinnum meðal 10 efstu.

Það leit út fyrir að hann væri enn einu sinni á leið í Q-school 2011 en hann varð T-3 á SA Open Championship þannig að hann rétt slapp, varð nr. 108 á peningalista Evrópumótaraðarinnar. Hann gat ekki endurtekið leikinn 2012 og varð að fara aftur í Q-school þar sem hann náði enn einu sinni 9. sætinu, sem hann deildi að þessu sinni með 4 öðrum og tryggði sér keppnisrétt á Evrópumótaröðina 2013.

Hann þurfti aftur í Q-school 2013 en vann sér ekki inn spilarétt á mótaröðina 2014 og spilaði á Áskorendamótaröð Evrópu 2014, þar sem honum gekk ekki vel – varð í 84. sæti á peningalistanum og varð því enn eina ferðina að snúa í Q-school.

Þar gekk honum vel en nú er McEvoy enn einu sinni búinn að tryggja sér kortið sitt á Evrópumótaröðina í gegnum Q-school, nú keppnistímabilið 2015 með glæsilegum 8. sætis árangri eins og áður segir.

Sem unglingur var McEvoy mikið í öðrum íþróttum, m.a. fótbolta, tennis og badminton áður en hann lagði golfið alfarið fyrir sig.

Meðal áhugamála McEvoy eru tónlist, íþróttir almennt og að sósíalisera. Hann er sem stendur nr. 925 á heimslistanum.