Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 09:47

Hver er kylfingurinn: Paul Waring?

Enski kylfingurinn Paul Waring sigraði nú um helgina á Nordea Masters, sem var mót vikunnar á Evróputúrnum, eftir bráðabana við Thomas Aiken frá S-Afríku.

Waring hafði betur þegar á 1. holu bráðabanans; vann með pari meðan Aiken fékk skolla.

Mótið fór fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Svíþjóð.

En hver er kylfingurinn Paul Waring …. það hefir ekki beint farið mikið fyrir honum, þó hann hafi stundum verið meðal efstu á mótum Evróputúrsins?

Paul James Waring fæddist 2. febrúar 1985 í Birkdale í Englandi og er því 33 ára.

Í dag býr Waring í Bebington á Englandi.

Hann er 1,8 m á hæð og 79 kg.

Hann átti góðan áhugamannaferil þar sem hann m.a. átti sæti í sigurliði Breta í McGregor bikarnum 2001 og vann English Amateur árið 2005.

Waring gerðist atvinnumaður í golfi 2007 og gekk þegar vel á Áskorendamótaröð Evrópu; en hann tapaði m.a. það ár fyrir Felipe Aguilar í bráðabana á Postbank Challenge í Þýskalandi.

Hann hefir haldið sig á Evróputúrnum eftir að hljóta kortið sitt það 2007 í gegnum Q-school.

Hin síðari ár hefir Warið af og til látið kræla á sér í efstu sætum móta. T.a.m. varð hann T-3 á Portugal Masters 2013 og eins á Maybank Malaysian Open 2015.

Í febrúar 2017 náði hann besta árangri sínum til þess þegar hann varð í 2. sæti á Joburg Open. Þetta mót var eitt af úrtökumótunum fyrir Opna breska 2017 þannig að hann hlaut þátttökurétt á Opna breska, í fyrsta sinn frá árinu 2008.

Í apríl varð Waring í 3. sæti á  Trophée Hassan II.

Fyrsti sigur Waring kom í 200. skiptinu sem hann keppti á Evróputúrnum, þ.e. á Nordea Masters 2018.  Eftir sigurinn var m.a. haft eftir Waring að hann hefði haldið á tímabili að þessi dagur ætti aldrei eftir að koma.  En hann kom ….!