Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2017 | 14:00

Hver er kylfingurinn: Paul Dunne?

Hinn 24 ára írski kylfingur Paul Dunne sigraði í gær, 1. október 2017, á fyrsta móti sínu á Evróputúrnum, sjálfu stjörnum prýddu British Masters.

Margir þekkja samt ekkert til Dunne og kunna að spyrja: Hver er kylfingurinn?

Paul Colum Dunne fæddist í Dublin 26. nóvember 1992, sonur Colum og Michelle Dunne og verður því 25 ára í næsta mánuði.  Hann er frá Greystones á Írlandi í Wicklow sýslu. Hann á 2 eldri systkini Alison og David.  Dunne var fyrst í  Blackrock College, sem er menntaskóli fyrir pilta.  Árið 2010  sigraði Dunne Irish Youths Amateur titlinn og næsta ár á eftir var hann í 3. sæti.

Dunne útskrifaðist síðan með viðskiptagráðu í fjármálafræðum frá University of Alabama at Birmingham og var því í bandaríska háskólagolfinu.   Skólinn er sá sami og Graeme McDowell var í.

Sem næstefstubekkingur í háskóla (junior) var Dunne útnefndur2014 Conference USA Golfer of the Year. Sem efstubekkingur varð Dunne í 5. sæti í einstaklingskeppninni í 2015 NCAA Division I Men’s Golf Championship. Sem efstubekkingur í háskóla var hann besti maður liðs síns, he Blazers, með meðaltalsskor upp á  71.9.

Dunne komst fyrst á Opna breska 2014 gegnum úrtökumót í Woburn.  Hann var með skor upp á 75 og 73 komst ekki í gegnum niðurskurð, en aðeins munaði 2 höggum. Dunne spilaði einnig í Palmer Cup árið 2014.

Dunne lauk áhugamannsferli sínum eftir að hafa verið í liði Breta/Íra í 16,5 – 9,5 vinnings sigri yfir liði Bandaríkjanna á Royal Lytham & St Annes Golf Club í Walker Cup. Hann vann 1,5 stig af 4 mögulegum í þessu 2 daga móti.

Fyrst bar á Dunne á Opna breska 2015 þegar hann spilaði sem áhugamaður og var jafn öðrum í 1. sæti 3 fyrstu  hringi mótsins.

Nánar um Opna breska 2015:

Dunne komst á Opna berska 2015 með því að sigra lokaúrtökumótið fyrir risamótið í Woburn.  Þetta var 2. árið í röð sem hann sigraði á lokaúrtökumótið. Hann var á69 höggum á fyrstu tveimur hringjunum og komst gegnum niðurskurð. Hann var sá nýliði sem var að standa sig best Á 3. hring var Dunne á 66 höggum  og deildi forystunni likt og tvo fyrri dagana á 12 undir pari. Hann var fyrsti áhugamaðurinn frá árinu 1927 til þess að vera í forystu á Opna breska eftir 54 holur og hann setti líka mótsmet fyrir lægsta skor eftir 54 holur af áhugamanni. Á lokahringnum var hann paraður með Louis Oosthuizen. Hann kom í hús á 78 höggum og rann niður skortöfluna og lauk mótinu T-30, sem til þessa er besti árangur Dunne í risamóti.

Atvinnumannsferill:
Dunne gerðist síðan atvinnumaður seint á 2015.  Fyrsta mótið sem Dunne lék í sem atvinnumaður í golfi var Alfred Dunhill Links Championship.  Í nóvember 2015, hlaut hann kortið sitt á Evróputúrnum eftir að hafa orðið í 16. sæti í Q-school Evróputúrsins. Hann varð síðan í 106. sæti á Race to Dubaí stigalistanum og hlaut inngöngu á Evróputúrinn 2017 keppnistímabilið.

Í april 2017, tapaði Dunne í bráðabana fyrir Edoardo Molinari á Trophée Hassan II. Hann missti 3 m parpútt á 1. holu og  Molinari vann á pari. Í október 2017  (nánar tiltekið í gær 1. október) sigraði Dunne í fyrsta sinn á Evróputúrnum á British Masters og átti 3 högg á Rory McIlroy, eftir að hafa spilað lokahringinn á 61. Titill Dunne var 51. titill, sem unninn var af írskum kylfingi á Evróputúrnum.

Sigrar Dunne sem áhugamanns: 
2009 Irish Boys Close
2010 Irish Youths Amateur Close
2013 East of Ireland Open Championship, Georgetown Intercollegiate
2014 Samford Intercollegiate

Sigrar Dunne sem atvinnumanns:
1. október 2017 British Masters −20 (66-68-65-61=260) Átti 3 högg á Rory McIlroy.