Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2012 | 11:00

Hver er kylfingurinn: Nicholas Colsaerts?

Nicholas Colsaerts er nafn sem sést hefir ofarlega á skortöflum á mótum Evrópumótaraðarinar það sem af er keppnistímabilsins 2012 og nú um helgina gerðist það loks að hann sigraði mót þ.e. Volvo World Match Play Championship í Casares í Andaluciu. Belgar hafa ekki verið atkvæðamiklir í golfi a.m.k. ekki ofarlega á blaði í helstu mótaröðum heims og er skemmtilegt ef nú er að verða breyting á, því golf í Belgíu á sér nokkra hefð.

Nicholas Colsaerts.

Hver er þessi geðþekki belgíski kylfingur?

Nicolas Colsaerts fæddist í Schaerbeek í Belgíu, 14. nóvember 1982 og er því 29 ára. Hann gerðist atvinnumaður í golfi árið 2000, á 18 ára afmælisdaginn og hlaut mjög fljótlega kortið sitt á Evróputúrinn.  Hann náði samt ekki að halda því og hlaut ekki þáttökurétt á túrnum aftur fyrr en 2010 eftir að hafa orðið í 3. sæti á Áskorendamótaröðinni (ens. Challenge Tour) árið 2009.

Colsaerts hefir oft verið óheppinn í keppnum t.d. var hann í forystu um miðbik Irish Open árið 2006, en hrundi niður skortöfluna og lauk keppni í 53. sæti. Eins leiddi hann  Scandinavian Open eftir 3. hring en lauk keppni T-24.

Colsaerts sigraði næstum því árið 2009 í Challenge of Ireland mótinu eftir að hafa spilað lokahringinn á 68 höggum en tapaði í umspili á 3. holu fyrir enska kylfingnum Robert Coles. Hvað sem öðru leið þá vann hann fyrsta sigur sinn á Challenge Tour nokkrum vikum síðar á SK Golf Challenge og bætti við sigri á Dutch Futures í október.

Nicholas Colsaerts.

Árið 2010 var besti árangur Colsaerts 3. sætið á BMW Italian Open og hann hélt kortinu sínu á Evrópumótaröðinni fyrir keppnistímabilið 2011 eftir að hann varð í 67. sæti á Race to Dubai stigatöflunni.

Árið 2011 vann hann fyrsta titil sinn á Evrópumótaröðinni, þegar hann vann Volvo China Open. Hann komst síðan í úrslit á Volvo World Match Play Championship 2011 á Spáni, en tapaði fyrir sigurvegara þess árs Ian Poulter eftir umspil.

Þessar niðurstöður urðu til þess að hann var nógu ofarlega á stigalistanum að hann hlaut þátttökurétt á Opna breska 2011 og tveimur dögum síðan vann hann í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska 2011 í Walton Heath Golf Club.

Hann lauk 2011 keppnistímabilinu í 20. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar, Race to Dubai og þar með tryggði hann sér þátttökurétt á 2 risamótum 2012.  Nú um helgina (þ.e. 20. maí 2012) vann hann síðan stærsta sigur sinn til þessa, Volvo World Match Play Championship.

Nicolas Colsaerts.

Hér í lokin er vert að líta á helstu sigra Nicholas Colsaerts: 

Sigrar sem áhugamaður (3)

▪ 2000 Belgian Stroke Play Championship, Belgian Match Play Championship, French Boys Championship

Sigrar sem atvinnumaður: (9)

Á Evrópumótaröðinni  (2)

1     24. apríl 2011  Volvo China Open  -24 (65-67-66-66=264)

Átti 4 högg á þÁ Søren Kjeldsen,  Peter Lawrie, Danny Lee  og Pablo Martín

2     20. maí  2012Volvo World Match Play Championship    1&0  Graeme McDowell

Á Challenge Tour (2)

1  9. ágúst 2009   SK Golf Challenge   -11 (70-71-70-66=277)

Vann í umspili g.  Rhys Davies og Julien Guerrier

2   13. sept. 2009   Dutch Futures    -17 (69-66-67-69=271)

Átti 4 högg á  Andrew McArthur og Julien Quesne

Aðrir sigrar (5)

▪ 2000 World Travel Open (PGA í Belgium) (sem áhugamaður)

▪ 2002 Belgian Match Play Championship

▪ 2003 Omnium of Belgium

▪ 2005 Open International de Bordeaux (Alps Tour)

▪ 2010 Mauritius Golf Masters

Heimild: Wikipedia