Martin Kaymer fær á sig vatnsgusu frá löndu sinni og „Sam-Düsseldorfara“ Söndru Gal – eftir sigurinn á Opna bandaríska 15. júní 2014 Hver er kylfingurinn: Martin Kaymer? (4/7)
Árið 2008 – Áframhaldandi velgengni Kaymer
Kaymer hóf árið 2008, þ.e. 20. janúar með fyrsta sigri sínum á Evrópumótaröðinni þ.e. með sigri á Abu Dhabi Golf Championship. Með sigrinum komst Kaymer í 34. sætið á heimslistanum og var á þeim tíma eini kylfingurinn undir 25 ára aldri sem var á topp-50 á heimslistanum.
Sigurinn tryggði honum einnig þátttökurétt á heimsmótinu í holukeppni (ens. WGC-Accenture Match Play Championship) og Masters risamótið.
Tveimur vikum eftir sigurinn á Abu Dhabi Golf Championship, varð Kaymer í 2. sæti á Dubai Desert Classic. Hann lauk lokahringnum með eftirminnilegum fugli-erni-fugli en Tiger Woods átti þó 1 högg á hann og sigraði í mótinu. Kaymer komst við þetta í 21. sæti heimslistans.
Annar sigur ársins hjá Kaymer kom á BMW International Open og varð hann fyrsti Þjóðverjinn í 20 ára sögu mótsins til þess að vinna sigur. Hann var 6 högg í forystu fyrir lokahringinn en var síðan á 75 höggum lokahringinn, sem varð til þess að hann varð að fara í bráðabana við Anders Hansen. Kaymer fékk fugl á fyrstu holu umspils og vann Hansen.
Kaymer komst nærri því að sigra í 3. sinn á Alfred Dunhill Links Championship, en varð að lúta lægri hlut gegn Robert Karlsson í þriggja manna bráðabananum, en í honum var einnig Ross Fisher. Kaymer varð enn í 2. sæti á Volvo Masters, 2 höggum á eftir sigurvegaranum Søren Kjeldsen. Kaymer vann sér inn €1,794,500 árið 2008 og varð í 8. sæti peningalistans. Kaymer missti naumlega af því að komast í Ryder Cup lið Evrópu 2008, en fyrirliðinn Nick Faldo bauð Kaymer að aðstoða liðið, án þess að spila, sem Kaymer þáði. Kaymer var fulltrúi Þjóðverja í Omega Mission Hills World Cup 2008 ásamt Alex Čejka. Þeir urðu í 5. sæti í þetta sinn.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
