Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2016 | 11:00

Hver er kylfingurinn: Marcus Fraser?

Ástralinn Marcus Fraser leiðir eftir fyrsta dag á Ólympíuleikunum í golfi, en golf er nú keppnisgrein í fyrsta skipti í 112 ár!!!

Fraser er nafn sem af og til sést ofarlega á mótum Evróputúrsins eða Ástralasíska túrsins, en veit nokkur nánari deili á þessum annars ágæta kylfingi?

Marcus Fraser fæddist í Corowa í New South Wales, 26. júlí 1978 og er því nýorðinn 38 ára.

Fraser spilar eins og segir aðallega á Evróputúrnum og Ástralasíska túrnum.

Hann lauk frábærum áhugamannsferli sínum 2002, en hann sigraði m.a. í einstaklingskeppni Eisenhower Trophy.

Fraser gerðist atvinnumaður þetta ár 2002 og spilaði aðallega fyrst um sinn í 2. deildinni þ.e. Áskorendamótaröð Evrópu (Challenge Tour).

Árið 2003 vann hann 3 mót á einum mánuði á Challenge Tour: the Danish Open, the Talma Finnish Challenge og the Russian Open, sem einnig var mót á Evrópumótaröðinni.

Sá síðasti af þessum 3 sigrum tryggði honum kortið á Evrópumótaröðinni 2004. Hann hefir síðan þá haldið  korti sínu á Evróputúrnum og hefir spilað í yfir 200 mótum á Evróputúrnum, en besti árangur Fraser á heimslistanum er 51. sætið.

Þann 25. apríl 2010 sigraði Fraser á Ballantine’s Championship með lokahring upp á 69 högg og átti 4 högg á næsta keppanda.

Í júní 2012 tapaði Fraser í bráðabana gegn Danny Willett á BMW International Open í Köln, í Þýskalandi.

Fraser vann síðan 3. titil sinn á Evróputúrnum á 1. móti Maybank Championship í Malaysíu í febrúar á þessu ári, 2016. Hann græddi á því að leikur forystumannsins e. 3. dag Lee Soo-min virtist hrynja. Fraser vann með 2 höggum eftir að Lee missti niður 4 högg á síðustu 3 holum.

Þar með lauk 6 ára eyðimerkurgöngu Fraser, þar sem hann hafði spilað í 119 mótum án þess að sigra!

2016 virðist vera ár Fraser því nú er hann í forystu eftir 1. hring Ólympíuleikanna í golfi og aldrei nema hann bæti Ólympíugulli í titlasafnið!!!