Hver er kylfingurinn: Li Haotong?
Síðastliðna helgi sigraði kínverskur kylfingur á Volvo China Open og skrifaði Kína í sögubækurnar sem þá þjóð sem ein hefir tekist að sigra á mótinu ár eftir ár.
En hver er þessi Haotong?
Li Haotong (á kínversku: 李昊桐) fæddist 3. ágúst 1995 og er því 20 ára.
Li gerðist atvinnumaður árið 2011 og hefir spilað á OneAsia Tour og Ástralasíu túrnum (á ensku: PGA Tour of Australasia). Hann hefir líka tekið þátt í nokkrum mótum Evrópumótaraðarinnar, þannig að Volvo China Open er ekki fyrsta mót hans á Evrópumótaröðinni.
Li komst á nýja PGA Tour í Kína 2014, þar sem hann hefir sigrað 3 sinnum og hann var efstur á peningalista mótaraðarinnar þannig að hann hlaut kortið sitt á Web.com Tour og er fyrsti Kínverjinn til að spila á Web.com Tour. Li varð í 11. sæti á fyrsta móti sínu áWeb.com Tour þ.e. the Panama Claro Championship. Hann hélt korti sínu á Web.com Tour keppnistímabilið 2015-2016 með því að verða nr. 49 á peningalista mótaraðarinnar.
Á miðju Web.com Tour kepnnistímabilinu ferðaðist Li aftur til Kína og tók þátt í fyrsta Shenzhen International 2015, en það mót var hluti Evrópumótaraðarinnar.
Á fyrsta hring í því móti var Li á 71 á 2. hring 73 og síðan átti hann glæsihring upp á 7 undir pari, 65 högg þegar spilafélagi hans tvöfaldi Masters sigurvegarinn Bubba Watson var bara á 74 höggum. Á þessu stigi átti Li besta skor mótsins ásamt Pablo Larrazabal frá Spáni.
Varðandi hring sinn með Bubba sagði Li: „Hann er ansi næs náungi, þannig að mér fannst mjög gaman að spila með honum. Ég hitt margar flatir á tilætluðum höggafjölda og náði að setja niður fullt af fuglum. Ég var líka mjög heppinn.“
Bubba átti heldur varla til orð til að lýsa hrifningu sinni á hinum unga Li, en sagði m.a.: „Hann var að slá boltann mjög vel. Hann setti niður mörg pútt. Lykillinn að golfvöllum er að setja niður sem flest pútt og hann náði að setja niður mörg í dag.“
Á 4. mótsdegi var Li á 67 höggum en varð að horfa á það í sjónvarpinu hvort hann yrði fyrsti kínverski kylfingurinn til þess að sigra mót á Evrópumótaröðinni á kínverskri grund. Hinn thaílenski Kiradech Aphibarnrat, sem leiddi mestallt mótið náði að vera 12 undir pari og sigraði síðan í bráðabana með 1 höggi.
Vikuna þar á eftir tók Li þátt í Volvo China Open þar sem hann varð í 6. sæti en eftir það sneri hann aftur á Web.com Tour. Við árslok 2015 hafði Li spilað 5 mót í Asíu auk keppni á Web.com. Hann tók m.a. þátt í WGC-HSBC Champions í Shanghai, var þar í boði styrktaraðila og varð T-7, sem er besti PGA Tour árangur kínversks kylfings.
Og á Verkalýðsdeginum, 1. maí 2016 náði hann fyrsta sigri sínum á Evrópumótaröðinni þ.e. á Volvo China Open, eins og áður segir.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
