Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2014 | 10:00

Hver er kylfingurinn: Kyu Jung Baek?

Það er ný suður-kóreönsk golfstjarna að rísa á golfstjörnuhimninum og er ferð hennar upp golfstjörnuhvolfið gríðarhratt.

Hér er auðvitað átt við hina frábæru Kyu Jung Baek, sem s.l. helgi vann fyrsta mót sitt á LPGA mótaröðinni bandarísku í Sky 72 klúbbnum í Incheon, S-Kóreu.

Baek eftir fyrsta sigur sinn á LPGA

Baek eftir fyrsta sigur sinn á KLPGA

En hver er kylfingurinn?

Kyu Jung Baek fæddist í Suður-Kóreu, 15. október 1995 og er því nýorðin 19 ára.  Það skal tekið fram hér að Baek á sama afmælisdag og núverandi Íslandsmeistari í höggleik, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR og eins frábærir íslenskir kvenkylfingar eins og  Eygló Myrra Óskarsdóttir GO og Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG.

Baek byrjaði að spila golf 7 ára og hefir því stundað golfleikinn meiripart ævinnar.

Sem áhugamaður var hún í fjölmörg ár í golflandsliði Suður-Kóreu, þ.e. með kylfingum á borð við Hyo Joo Kim (sem var valin nýliði ársins á kóreönsku LPGA á sl. ári); In Gee Chun (sem sigraði á Korean Women’s Open á sl. ári) og Min Sun Kim (sem einnig er nýliði á KLPGA 2014).

E.t.v. er stærsti sigur Baek sem áhugamanns, þegar hún var í sigurliði Suður-Kóreu árið 2012, ásamt þeim Hyo-joo Kim og Min-sun Kim í Espirito Santo Trophy og það er einmitt þessari nýju bylgju af frábærum nýjum, ungum kvenkylfingum frá Suður-Kóreu, sem Baek tilheyrir.

Sigurliðið á Espirito Santo Trophy 2012 - Team Korea. F.v.  Baek, Min- sun Kim og Hyo Joo Kim.

Sigurliðið á Espirito Santo Trophy 2012 – Team Korea. F.v. Kyu-jung Baek, Min- sun Kim og Hyo-joo Kim.

Árið 2013, þá aðeins 17 ára, gerðist Baek atvinnumaður í golfi og hóf ferilinn í 2. deild kóreanska kvennagolfsins: the Dream Tour.

Það leið ekki á löngu að hún lék í Korean Open, sem er stærsti viðburðurinn í kóreönsku kvennagolfi og varð í 3. sæti eftir að hafa verið í forystu fyrir lokahringinn.

Góður árangur Baek í þessu stærsta móti kvennagolfsins í Kóreu vakti athygli á henni og margir farnir að líta á hana sem efnilegasta kvenkylfing Suður-Kóreu …. og Baek brást ekki væntingum landa sinna.

Hún sigraði tvisvar á Dream Tour 2013 og var þar með komin upp í 1. deildina kóreönska LPGA skammst. KLPGA árið 2014.

Það sem af er ársins í ár, 2014 hefir Baek sigrað í fjórum mótum á KLPGA, þ.á.m. því móti sem vakti athygli á henni á heimsvísu og er m.a. orsök þess að verið er að skrifa um hana hér heima á Íslandi: LPGA – KEB HanaBank Championship, en það mót var haldið í samvinnu við bandaríska LPGA og telur því sem sigur á þeirri mótaröð.

Greinilegt að það er frábær kylfingur á ferð þar sem Baek er og verður gaman að fylgjast með henni í framtíðinni.